Ástir, kynlíf og rokk og ról
Tom Cruise er mættur til landsins en hér verða tekin upp atriðið í framtíðarspennumyndina Oblivion. Svo skemmtilega vill til að rétt í kjölfar komu hans til landsins hefjast hér sýningar á nýjustu mynd hans, Rock of Ages, sem byggð er á samnefndum söngleik sem notið hefur mikilla og stöðugra vinsælda um árabil.
Söngleikurinn Rock of Ages var fyrst settur á svið árið 2006 og sló í gegn á Broadway 2009 og hefur notið vinsælda víða um lönd í kjölfarið. Söngleikurinn er nú orðinn að kvikmynd þar sem góðum hópi þekktra leikara er teflt fram og ber þar vitaskuld fyrstan að nefna sjálfan Tom Cruise sem um þessar mundir spókar sig á Íslandi. Russell Brand, Catherine Zeta-Jones, Paul Giamatti, Malin Åkerman, Bryan Cranston og Alec Baldwin láta einnig til sín taka en í brennidepli eru kántrí söngkonan unga Julianne Hough og Diego Boneta.
Rock of Ages gerist árið 1987 og tónlist þess tíma skipar veigamikinn sess í myndinni og kunnuglegir slagarar á borð við Just Like Paradise, I Love Rock 'n' Roll, Wanted Dead or Alive, Harden My Heart og Can't Fight This Feeling hljóma og ekki minni kempur en Bon Jovi, Guns N' Roses, Def Leppard, Foreigner, Journey, Poison, Whitesnake, Night Ranger, Twisted Sister og REO Speedwagon láta til sín taka og leika undir rokkaðri dramatíkinni í myndinni.
Smábæjarstúlkan Sherrie (Julianne Hough) kemur til Los Angeles frá Tulsa í Oklahoma með stóra drauma um að slá i gegn sem söngkona. Hún hefur varla náð áttum í stórborginni þegar plötusafninu hennar, sem hún burðast með með sér, er stolið. Barþjóninn Drew (Diego Boneta), sem vinnur á hinum vinsæla klúbbi The Bourbon Room, verður vitni að þjófnaðinum en tekst ekki að bjarga vínýlnum hennar Sherrie. Þeim verður þó vel til vina og frægðardraumar sameina þau og tilfinnningar vakna. Drew útvegar Sherrie vinnu á The Bourbon Room þar sem allt er á suðupunkti fyrir og ekki dregur úr spennunni að parið vinnur þar saman.
Eigendur staðarins skulda skatta og eiga á hættu að klúbbnum verði lokað en skattskuldin er vatn á millu Patriciu Whitmore (Catherine Zeta-Jones), íhaldsamrar og strangtrúaðrar eiginkonu borgarstjórans sem berst harkalega fyrir því að lastabælinu The Bourbon Room verði endanlega lokað. Alec Baldwin leikur eiganda klúbbsins, Dennis Dupree, og hann ákveður, ásamt hægri hönd sinni Lonny Barnett (Russell Brand) að reyna að bjarga skuldinni með stórtónleikum. Helsta tromp þeirra í þessu plani er rokkstjarnan Stace Jaxx, sem Tom Cruise leikur, en hann hóf glæstan feril sinn á sínum tíma í hljómsveit með þeim Dennis og Lonny á Teh Bourbon Room. Jaxx er nýhættur í hljómsveit sinni Arsenal en ýmislegt er á huldu um hvernig þau starfslok komu til.
Örlög og tilfinningar alls þessa fólks og fleiri til fléttast sundur og saman í Rock of Ages og ýmislegt gengur á í The Bourbon Room eins og lög og óreglur rokksins gera ráð fyrir.
Aðrir miðlar: 6.3, Rotten Tomatoes: 41%, Metacritic: 47%


