22.06 2012 | Dægurmál

Dóra Takefusa opnar Dolly

„Það breytir engu fyrir mig hvort ég er með skrifstofu á Nörrebro eða við Klapparstíg,“ segir skemmtistaðaeigandinn Dóra Takefusa.

Dóra hefur um árabil rekið skemmtistaðinn Jolene í Kaupmannahöfn en síðasta árið hefur hún fjarstýrt staðnum héðan úr Reykjavík. „Það er voðalega lítið mál, ég held fundi í gegnum Skype og panta og borga alla reikninga á netinu. Svo flakka ég töluvert á milli, ætli ég sé ekki um það bil fjóra daga í mánuði í Kaupmannahöfn,“ segir Dóra.

Skemmtanaveldi Dóru stækkar um helming á næstunni þegar hún opnar nýjan stað í miðborg Reykjavíkur. Staðurinn verður í Hafnarstræti þar sem írski barinn Dubliners var áður. „Við erum að fara að byggja staðinn upp á svipuðu konsepti og Jolene svo það kom aldrei neitt annað til greina en að hann héti Dolly,“ segir Dóra og hlær.

Dóra segir þó að Dolly verði aldrei eins og systurstaðurinn enda er sá síðarnefndi í gömlu sláturhúsi í iðnaðarhverfi en sá væntanlegi í eldgömlu timburhúsi. Dóra hefur fengið góðan liðsstyrk því Óli Hjörtur Ólafsson, velþekktur stuðbolti úr skemmtanalífinu sem rak eitt sinn Q bar, mun reka staðinn með henni. „Hann er bugaður af reynslu í þessum bransa,“ segir Dóra sem lofar spennandi stað: „Þó fólk verði að sveifla sér og dansa uppi á borðum um helgar mun það samt alveg geta haft það huggulegt þarna á virkum dögum.“


Höskuldur Daði Magnússon

.(JavaScript must be enabled to view this email address)





Til baka