Fjarar undan fimmtugu goði
Stórstjarnan Tom Cruise varð fimmtugur á þriðjudaginn. Ekkert varð þó af fagnaðarlátum á Íslandi eins og til stóð og leikarinn er sagður hafa flogið af landi brott á afmælisdaginn. Fimmtugur kappinn hefur litla ástæðu til þess að gleðjast á tímamótunum þar sem þriðja eiginkona hans, Katie Holmes, hefur farið fram á skilnað. Fregnir herma að Cruise hafi sleikt sárin í faðmi barna sinna og Nicole Kidman sem fór frá honum fyrir nokkrum árum. Fréttatíminn stiklar hér á stóru yfir feril eins valdamesta mannsins í Hollywood sem þekkir mótlæti vel þrátt fyrir ótrúlega velgengni í kvikmyndaheiminum.
Thomas Cruise Mapother IV fæddist þann 3. júlí árið 1962. Hann á ættir að rekja til þýskra, írskra og enskra innflytjenda. Hann ólst upp við kröpp kjör og kaþólska trú undir hælnum á ofbeldisfullum föður sem Cruise hefur lýst sem svo að vera heigull og tuddi. Þegar Cruise var tólf ára fór móðir hans frá föður hans og tók með sér börnin tvö, Tom og systur hans Lee Anne sem hefur unnið náið með bróður sínum eftir að hann lagði kvikmyndaheiminn að fótum sér. Faðir hans lést árið 1984 og var fjölskyldunni enginn harmdauði.
Cruise sótti fimmtán mismunandi skóla í æsku og varð reglulega fórnarlamb eineltis. Hann byrjaði ungur að leika í skólaleikritum en hugur hans stóð þó ekki til Hollywood þar sem hann ætlaði sér að verða kaþólskur prestur. En leiklistin togaði og árið 1981 lék hann aukahlutverk í myndunum Endless Love og Taps. Stóra tækifærið kom síðan tveimur árum síðar þegar hann fór með aðalhlutverkið í Risky Business og feril hans hefur nánast verið óslitin sigurganga síðan. Árið 1986 festi hann sig í sessi sem stórstjarna í Top Gun sem hann fylgdi eftir með The Color of Money þar sem hann lék á móti goðsögninni Paul Newman en þeir tveir deildu ástríðufullum áhuga á akstri kappakstursbifreiða.
Hann mætti síðan öðrum stórlaxi 1988 þegar hann lék á móti Dustin Hoffman í Rain Man. Myndin hlaut Óskarinn sem besta myndin. Ári síðar var Cruise fyrst tilnefndur til Óskarsverðlauna sem besti leikarinn fyrir túlkun sina á fatlaða uppgjafarhermanninum Ron Kovic í Born on the Fourth of July. Hann var einnig tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna fyrir leik sinn í myndinni og fékk Golden Globe-verðlaunin.
Cruise hefur aldrei hreppt Óskarinn en fengið tilnefningar fyrir Jerry Maguire og sem besti aukaleikarinn í Magnolia. Bæði þessi hlutverk skiluðu honum þá Golden Globe-verðlaunum.
Fáir leikarar síðustu áratuga eru gæddir jafn sterkum miðasöluþokka og Tom Cruise sem hefur haldið stöðu sinni sem trygging fyrir mikilli aðsókn og metfé þótt á ýmsu hafi gengið í einkalífinu. Mission Impossible-myndirnar hafa malað Cruise og framleiðendum þeirra gull þannig að hann á eftir að leika leyniþjónustumanninn Ethan Hunt í það minnsta einu sinni enn. Hann hefur einnig átt farsælt samstarf með leikstjóranum Steven Spielberg í Minority Report og War of the World og leikið á móti Cameron Diaz í tvígang í Vanilla Sky og Knight and Day. Stílistinn Michael Mann tefldi honum fram sem leigumorðingja í Collateral og það verður nú bara að segjast eins og er að það fer Cruise betur að leika skúrka en góðu gæjana sem hann hefur sérhæft sig í. Hann var frábær skíthæll í Magnolia og enn betri drullusokkur í smáhlutverki í gamanmyndinni Tropical Thunder.
Voldugur og umdeildur
Tom Cruise er ekki síður öflugur kvikmyndaframleiðandi en leikari og þykir hafa gert marga bestu samninga í Hollywood. Hann er talinn í hópi ríkustu og valdamestu aðila í Hollywood og er sagður eiga það sameiginlegt með George Lucas, Steven Spielberg og Jerry Bruckheimer að tryggja árangur milljarða dollara myndasería.
Cruise var samningsbundinn Paramount til fjórtán ára en kvikmyndaverið lét hann róa árið 1996, að sögn vegna þess að virði Cruise sem leikara og framleiðanda átti að hafa fallið verulega vegna umdeildrar framkomu hans og skoðana á opinberum vettvangi. Cruise og meðframleiðandi hans, Paula Wagner, svöruðu því svo til að ágreiningur um skiptingu gróðans af DVD-sölu Mission Impossible-myndana hafi valdið ágreiningi. Cruise og Wagner tóku síðar yfir United Artists þar sem Cruise er framleiðandi og helsti dráttarklárinn í miðasölunni.
Hvað sem því líður má vera ljóst að Paramount hefur ofmetið áhrif opinberrar umræðu á styrk Cruise sem er hvergi af baki dottinn og sló hressilega í gegn með fjórðu Mission Impossible-myndinni og á sjálfsagt eftir að skila drjúgu dagsverki með Jack Reacher og Oblivion. Óneitanlega hefur samt fallið á glansmyndina á liðnum árum en hálfrar aldar gömul stjarnan heldur þó enn sjó, hvað sem nú gerist en ætla má að skilnaður Cruise og Holmes verði subbulegur og í sviðsljósinu.
Kynþokkafullur og andstyggilegur
Árin 1990, 1991 og 1997 taldi tímaritið People Cruise á meðal fimmttíu fallegustu manneskja heims. Árið 1995 setti kvikmyndatímaritið Empire hann á blað sem eina af 100 kynþokkafyllstu kvikmyndastjarna sögunnar og flokkaði hann tveimur árum síðar sem eina af fimm stærstu kvikmyndastjörnum allra tíma. Árið 2006 var hann efstur á lista Forbes yfir voldugasta frægðarfólk heims.
Þrátt fyrir styrkleika og útlit er Cruise þó síður en svo allra. Helmingur aðspurðra í Gallup-könnum fyrir USA Today árið 2006 höfðu neikvætt viðhorf til leikarans og mörgum þótti hegðun hans óásættanleg. Um svipað leyti féll Cruise um 40 prósent á vísitölu markaðssérfræðinga sem mæla vinsældir frægðarfólks. Þá kom einnig á daginn að Cruise var sú stórsjarna sem fólki vildi almennt síst eiga fyrir besta vin.
Meðan áberandi hjónaband Cruise og Nicole Kidman hélt var mikið spáð í kynlíf þeirra og orðrómur um að Cruise væri samkynhneigður var þrálátur. Hann fékk breska blaðið Daily Express dæmt fyrir meiðyrði árið 1998 eftir að blaðið hélt því fram að hjónaband hans og Kidman væri markleysa til þess að breiða yfir kynhneigð Cruise. Cruise hefur höfðað fleiri slík mál á hendur fólki, þar á meðal samkynhneigða klámmyndaleikaranum Chad Slater sem hélt því fram að hann hefði átt í kynferðissambandi við Cruise.
Cruise íhugaði einnig að stefna The Beast þegar hann rataði á lista þess yfir 50 andstyggilegustu manneskjur ársins 2004. Ekkert varð þó af málssókninni og Cruise sat sem fastast á þessum sama lista ári síðar.
Eldheitur í vísindatrúnni
Cruise hefur komið sér ítrekað í bobba með hegðun sinni og yfirlýsingum sem oftar en ekki tengjast öfgafullri vísindakirkjutrú hans. Þegar hann gekk af göflunum í útsendingu hjá Ophru Winfrey var mögum nóg boðið og uppákoman endaði á lista yfir óvæntustu sjónvarpsuppákomurnar árið 2005. Cruise hefur verið viðloðandi Vísindakirkjuna sem kennd er við L. Ron. Hubbard síðan 1990 en kirkjunni hefur bæði verið lýst sem ofsatrúar samtökum og gróðafyrirtæki. Cruise heldur því til dæmis fram að aðferðafræði Vísindakirkjunnar hafi hjálpað honum að sigrast á lesblindu og hefur barist ákaft fyrir því að kenningar kirkjunnar verði viðurkenndar sem trúarbrögð í Evrópu.
Árið 2004 gerði Tom Cruise allt brjálað þegar hann lýsti því yfir að hann teldi að geðlæknisfræði ætti að vera gerð útlægð um leið og hann gagnrýndi leikkonuna Brooke Shields fyrir að hafa tekið lyndislyf vegna fæðingarþunglyndis. Hann sagði ekkert efnaójafnvægi til í mannslíkamanum og að geðlækningar væru gervivísindi. Shields svaraði honum fullum hálsi og sagði að Cruise ætti að halda sig við að bjarga heiminum frá geimverum og láta mæður sem þjáðust af fæðingarþunglyndi um að ákveða sjálfar hvaða meðferðarúrræði hentuðu þeim best. Cruise bað síðar Shields persónulega afsökunar á ummælum sínum.
Vísindakirkjan er þekkt fyrir andúð sína á geðlækningum og heldur þótti hljómurinn í afsökunarbeiðni Cruise holur en hvað sem því líður er nokkuð ljóst að fimmtugur er leikarinn í krísu. Hann hefur trú sína en fráfarandi eiginkonan frelsi til þess að tala við lækna, taka lyf og gera hvað annað til þess að vinna úr sínum málum.

