17.08 2012 | Dægurmál

Frjósamar menningarkonur fyrir norðan

Þrír af fjórum verkefnastjórum í Hofi á Akureyri eiga nú von á barni. Frá vinstri eru þær Freyja Dögg, Ingibjörg Ösp og Lára Sóley.
Þrír af fjórum verkefnastjórum í Hofi á Akureyri eiga nú von á barni. Frá vinstri eru þær Freyja Dögg, Ingibjörg Ösp og Lára Sóley.

„Þetta er bara tilviljun, þetta voru ekki samantekin ráð,“ segir Freyja Dögg Frímannsdóttir, verkefnisstjóri í menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Þær fréttir bárust frá Hofi í vikunni að menningarhúsið skilaði einnar og hálfrar milljón króna rekstrarafgangi til Akureyrarbæjar. Það eru þó ekki einu gleðitíðindin úr Hofi því þrír af fjórum verkefnastjórum í húsinu eiga von á barni í vetur. 

„Ég á von á stelpu um mánaðamótin október nóvember. Hún verður annað barn mitt,“ segir Freyja Dögg. Næst í röðinni er svo Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri sem á von á sínu fjórða barni í byrjun janúar. Þetta er fyrsta barn hennar og Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leikhússtjóra í Borgarleikhúsinu, en Ingibjörg á þrjú börn af fyrra hjónabandi. Lára Sóley Jóhannsdóttir á svo von á öðru barni sínu í byrjun febrúar. 

Starfsandinn er góður í Hofi eftir allar góðu fréttirnar og búið er að gera ráðstafanir til að starfsemin haldist óbreytt þegar verkefnastjórarnir hverfa í fæðingarorlof. „Við höfum mestar áhyggjur af því að fjórði verkefnastjórinn, Heiðrún Grétarsdóttir, verði ólétt líka,“ segir Freyja.
-hdm





Til baka

Múrbúðin