22.06 2012 | Dægurmál

Ísland – Fastaland í stórstjörnuhafinu

Íslendingar telja sig með nokkrum rétti eiga smávegis í Noomi Rapace, sem hefur síðan í æsku verið tíður gestur á landinu. Síðast kom hún hi
Íslendingar telja sig með nokkrum rétti eiga smávegis í Noomi Rapace, sem hefur síðan í æsku verið tíður gestur á landinu. Síðast kom hún hi

Ísland er aftur komið rækilega á kortið hjá þeim stærstu og þekktustu í Hollywood og nú streyma stórstjörnurnar hingað sem aldrei fyrr. Tom Cruise er á landinu við tökur á framtíðartryllinum Oblivion, leikstjórinn Darren Aronofsky er á landinu til þess að skoða tökustaði fyrir risamynd sína Noah. Tökur hefjast á Íslandi síðar í sumar og ætla má að þá verði Russell Crowe og fleiri þekkt nöfn í för með leikstjóranum. Þá ætlar gamanleikarinn og leikstjórinn Ben Stiller að taka hluta myndar sinnar The Secret Life of Walter Mitty á Seyðisfirði. Fréttatíminn skautar hér yfir hvaða stórstjörnur hafa heiðrað landann með nærveru sinni og hverjar eru væntanlegar.

Íslenskt landslag hefur löngum höfðað til kvikmyndagerðarfólks úti í hinum stóra heimi og hér hafa verið tekin upp atriði fyrir James Bond-myndir og fyrstu Batman-mynd Christopers Nolan, Batman Begins. Clint Eastwood kom hingað sælla minninga og tók stríðsatriði fyrir mynd sína Flag of Our Fathers og síðasta sumar tók sá goðsagnakenndi leikstjóri Ridley Scott upp byrjunaratriði geimtryllisins Prometheus sem sýnd er í kvikmyndahúsum um þessar mundir.
Scott er einn allra mesti þungavigtarmaður í kvikmyndabransanum sem gefið hefur Íslandi gaum og sú landkynning sem Ísland fær í Prometheus verður seint metin til fjár.

Listinn yfir frægðarmenninn sem hingað hafa komið á síðustu árum verður vart tæmdur hér en svo einhverjir séu nefndir þá gerði Kiefer Sutherland sér glaðan dag í Reykjavík fyrir nokkrum árum, Harrison Ford hefur kneyfað ölið á Dillon og John Travolta og Robert De Niro hafa millilent hérna en DeNiro snæddi þá á Hótel Holti, mörgum ógleymanlegur og þótti hann óvenju örlátur á þjórfé.
Sopranos-leikarinn Michael Imperioli kom til Íslands þegar hann lék í Stóra planinu eftir Ólaf Jóhannesson sem fékk síðar Jonathan Pryce til landsins fyrir Borgríki. Þá birtist Daniel Bruhl hér ferskur eftir Inglorious Basterds Quentins Tarantinos í Kóngavegi Valdísar Óskarsdóttur.

Tom Cruise í Bónusvillu
Tom Cruise er einhver áhrifamesti leikarinn í Hollywood og hann dvelur nú á Hrafnabjörgum í Vaðlaheiði, lúxusvillu sem Jóhannes, kenndur við Bónus, reisti sér á sínum tíma. Cruise er við tökur á framtíðarspennumyndinni Oblivion við Hrossaborgir í Mývatnssveit en þar þykir landslagið geta lýst því hvernig verður umhverfis á jörðinni að undangengnum dómsdegi. Cruise framleiðir myndina og leikur aðalhlutverkið. Morgan Freeman og Game of Thrones-skúrkurinn danski Nikolaj Coster-Waldau leika einnig í myndinni þannig að þeir gætu skotið upp kollinum í sveitinni.

Cruise er kvæntur leikkonunni Katie Holmes sem var með honum í för í síðustu viku þar sem vegfarendur í Þingholtunum mættu þeim til að mynda á göngu umkringdum lífvörðum á laugardaginn.
Orðrómur hefur verið uppi um að Cruise verði á Íslandi á fimmtugsafmælisdegi sínum þann 3. júlí og fari svo að hann fagni þeim áfanga hér má telja víst að mikill stjörnufans muni leggja leið sína hingað til þess að fagna með honum og hafa ekki ómerkari manneskjur en David og Victoria Beckham og Will og Jada Pinkett-Smith verið nefndar til sögunnar í því sambandi. Þar sem Ísland hefur hingað til heillað stjörnurnar má gera ráð fyrir að ruðningsáhrifin af afmæli Cruise verði þó nokkur og ríka og fræga fólkið muni hrúgast hingað í enn lengri halarófum.

Nóaflóð skellur á Íslandi
Leikstjórinn magnaði Darren Aronofsky, sem gerði það síðast gott með Black Swan, er staddur á Íslandi og undirbýr tökur á Noah, sem byggir á biblíusögunni um Örkina hans Nóa. Hann hefur ráðið Russell Crowe í hlutverk Nóa þannig að sá kappi er væntanlegur hingað síðsumars. Þá fara leikkonurnar Jennifer Connelly og Emma Watson, Hermoine úr Harry Potter, með hlutverk í myndinni og ætla má að nokkur fiðringur muni fara um Potter-aðdáendur þegar stúlkan sú stígur á íslenska grund. Þá fer breski harðjaxlinn Ray Winstone líklega með hlutverk erkifjanda Nóa en hann þekkir vel til á Íslandi og hefur þambað vodka á börum í Reykjavík. Þess má einnig geta til gamans að Ólafur Ragnar Grímsson hefur látið þess svo getið að ef gerð yrði kvikmynd um ævi hans sæi hann Russell Crowe fyrir sér í hlutverki Ólafs Ragnars Grímssonar. Þá hefur forsetinn einnig lýst því yfir að Crowe sé efstur á óskalista hans yfir þá það frægðarfólk sem hann langi að bjóða á Bessastaði og verði Ólafur Ragnar enn húsbóndi á forsetasetrinu þegar Crowe kemur má telja næsta víst að sá draumur hans rætist.

Dagdraumar á Seyðisfirði
Leikstjórinn og gamanleikarinn Ben Stiller er með fyndnari mönnum í Hollywood þrátt fyrir að hann glími við þunglyndi. Hann er byrjaður á endurgerð bíómyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty sem fjallar um dagdreyminn myndritstjóra á dagblaði sem fær skyndilega og óvænt tækifæri til þess að upplifa ævintýri. Myndin byggir á þekktustu smásögu James Thurber með sama nafni. Stiller hyggst taka upp atriði fyrir myndina á Seyðisfirði í sumar. Sean Penn hefur verið orðaður við hlutverk í myndinni þannig að reikna má með miklu stjörnustuði á Seyðisfirði á næstunni.
Fréttatíminn hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að nokkur fjöldi íslenskra leikara hafi undanfarið mætt í prufutökur fyrir hlutverk í myndinni en enn hefur ekkert frést hvort eða hver hafi hreppt hnossið.

Upphaf lífsins á Íslandi
Meistari Ridley Scott var á Íslandi fyrir nær sléttu ári þegar hann tók upphafsatriði stórmyndarinnar og Alien-forleiksins Prometheus við Heklurætur. Hugmyndin um Ísland sem tökustað kom upp seint í ferlinu en Scott hafði þetta að segja um landið í spjalli við Fréttatímann í fyrra: „Þetta er fallegt land og mikilfenglegt og hér fann ég það sem ég vildi fyrir þetta atriði,“ sagði Scott og bætti við að hann hafi ekki síst heillast af svörtu grjótinu og trjálausum auðnum. Landslagi sem vel megi sjá fyrir sér að hafi verið áberandi um það leyti sem líf var að kvikna á jörðinni.
Það var enginn smá mannskapur sem fyldi Scott til landsins og í hópnum voru stórleikararnir Charlize Theron, Noomi Rapace og Michael Fassbender sem hefur risið hátt og hratt undanfarin hár.
Theron vakti meðal annars óskipta athygli heimafólks þegar hún stakk sér til sunds í Landmannalaugar með sólgleraugu á nefinu.





Til baka

Múrbúðin