James Bond Hefur staðið vaktina í 50 ár
Fyrsta James Bond-myndin, Dr. No, var frumsýnd í október árið 1962. Þessi vaskasti njósnari hennar hátignar hefur því staðið vörð um hinn frjálsa heim í bíó í fimmtíu ár. Sex leikarar hafa á þessum tíma leikið Bond. Bond-myndirnar eru næst tekjuhæsti kvikmyndabálkur sögunnar en aðeins myndirnar átta um Harry Potter hafa skilað meiri hagnaði en Bond-myndirnar sem að vísu verða orðnar tuttugu og þrjár með frumsýningu Skyfall í október.
Sean Connery lék James Bond í Dr. No og varð strax hinn eini sanni Bond í hugum flestra og það var ekki fyrr en Daniel Craig tók að sér hlutverkið í Casino Royale árið 2006 að stöðu Connerys á stallinum var ógnað. Connery var þó ekki sjálfkjörinn í hlutverkið á sínum tíma og framleiðendurnir voru framan af með sjálfan Cary Grant efstan á óskalistanum. Þá var Ian Fleming, höfundur James Bond-bókanna, vægast sagt ósáttur með Connery í fyrstu en leikarinn vann á þannig að Fleming endaði með að skrifa skoska ættarsögu Bonds inn í seinni bækur sínar.
Fyrsta James Bond-bókin, Casino Royale, kom út árið 1953 þannig að það er óhætt að segja að Bond sé í grunninn kaldastríðshetja. Hann tókst strax í upphafi á við skúrka frá Sovétríkjunum, útsendara KGB og aðra austantjaldstudda sem ógnuðu hinum frjálsa heimi eftirstríðsáranna.
Sagan segir að Ian Fleming hafi ekki síst skapað Bond til þess að hressa upp á sjálfstraust breskrar þjóðarsálar sem stóð í skugga tveggja stórvelda eftir að seinni heimsstyrjöldin hafði verið gerð upp. Það má segja að það hafi tekist þar sem Bond hefur orðið ofan á í viðskiptum stórveldanna í sýndarveruleika kvikmyndanna í 50 ár og með tilkomu Daniels Craig er óhætt að segja að Bond hafi tekist að laga sig vel að breyttri heimsmynd.
James Bond í bókum Flemings er karlremba, rasisti og sadisti. Leyfið sem hann hefur til að drepa virðist stundum eins og fríðindi í hans huga og þessi sadíska taug í honum skilaði sér í Dr. No í meðförum Connerys. Jafnvel þótt tilfinningakuldi hans væri tónaður töluvert niður miðað við hvernig hann var í bókinni. Bond og félagar hans í leyniþjónustunni tala niður til samkynhneigðra og hörundsdökkra, bæði í skýrslum og samtölum sín á milli. Bond er því á prenti málpípa viðhorfa sem flestum þykja ótæk í dag.
Viðhorf Bonds til kvenna eru sér kapítuli út af fyrir sig og sumt af því sem Bond hugsar og segir um konur hjá Fleming er vart birtingarhæft í virðulegu blaði eins og Fréttatímanum. Látum samt eitt dæmi flakka úr Þrumufleyg, íslenskri þýðingu Thunderball:
„Konur eru oft athugulir og góðir bílstjórar, en mjög sjaldan fyrsta flokks. Yfirleitt fannst Bond þær fremur hættulegar, lét þær alltaf hafa nóg pláss á veginum og var við öllu búinn. Fjórar konur í bíl fannst honum hámark allrar áhættu og tvær konur næstum því dauðadómur. Konur geta aldrei þagað í bíl og um leið og þær tala þurfa þær að horfa hver á aðra. Þeim er ekki nóg að tala saman.... En þessi stúlka ók einsog karlmaður. Hún beitti allri athyglinni að veginum og ökuspeglinum, áhaldi sem konur nota mjög sjaldan nema til þess að snyrta sig í framan.“ Sérkennilegt vægast sagt þegar þetta er lesið árið 2012.
Þegar Roger Moore tók við númerinu 007 af Sean Connery færðist áherslan frá hinum ískalda og fúsa morðingja yfir í sprell og fíflagang. Allir grunnþættir Bond-myndanna héldu sér þó og ekki vantaði hasar, Bond-stúlkur, flotta bíla og geggjaðar græjur. Njósnarinn sjálfur er hins vegar í raun allt annar maður og þótt Moore hafi leikið Bond manna oftast þá er hann jafnan neðstur á listum yfir bestu Bondana. Connery hefur haldið sessi sínum en ef fram heldur sem horfir hlýtur Daniel Craig að skáka honum í framtíðinni.
Craig nálgast Bond á svipaðan hátt og Connery. Allt glens er á bak og burt og Bond er ískaldur og banvænn og hefur fundið fótfestu á ný eftir að hafa verið dálítið í lausu lofti eftir að járntjaldið féll.
Framleiðendur Bond-myndanna fagna fimmtugsafmælinu með frumsýningu 23 myndarinnar, Skyfall, í október og það sem þegar hefur sést úr henni bendir til að leikstjórinn Sam Mendes hafi föst tök á efninu og ekkert verði gefið eftir. Og Craig veit sjálfsagt upp á hár hvað hann er að gera en þetta sagði hann um Bond í viðtali við Fréttablaðið árið 2006 í kringum frumsýningu Casino Royale:
„Ég er ekki að segja að hann geri ekki slæma hluti. Hann er vondur maður sem drepur fólk og hann er ekkert sérstaklega góður við konur en innst inni er hann dyggðugur og heiðarlegur. Hann klárar málin, leysir sín verkefni og nær vonda karlinum.“


