Fréttatíminn

image description
02.09 2011 | Dægurmál

Örlátir krakkar styrkja UNICEF

Ágústa með fiðluna á lofti á Menningarnótt.
Ágústa með fiðluna á lofti á Menningarnótt.
Andrea, Diljá og Hugrún söfnuðu fé á Menningarnótt með flautuleik.
Andrea, Diljá og Hugrún söfnuðu fé á Menningarnótt með flautuleik.
Valný Lára hélt tombólu til styrktar UNICEF og er ákveðin í að halda áfram að safna.
Valný Lára hélt tombólu til styrktar UNICEF og er ákveðin í að halda áfram að safna.
Ísak Pars  og vinur hans Illugi Breki komu færandi hendi til UNICEF.
Ísak Pars og vinur hans Illugi Breki komu færandi hendi til UNICEF.

Þau sem landið munu erfa gefa þeim fullorðnu ekkert eftir þegar kemur að viðbrögðum við neyðarkalli vegna ástandsins í Austur-Afríku. Íslenskir krakkar hafa verið duglegir að færa UNICEF peningagjafir og óhætt er að segja að unga fólkið sýni mikla hugkvæmni þegar kemur að fjáröflun fyrir sveltandi jafnaldra í Afríku. Þau sem hafa komið færandi hendi hafa sum hver gefið af sumarhýrunni sinni og afmælispeningum og eru sammála um að sælla sé að gefa en þiggja.

Íslendingar hafa brugðist vel við hjálparbeiðni vegna hungursneyðarinnar sem geisar á þurrkasvæðunum í austurhluta Afríku. Ástandið þar er skelfilegt, eins og alþjóð veit, og UNICEF á Íslandi hefur einbeitt sér að því að hjálpa þúsundum lífshættulega vannærðra barna. Metfjöldi hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir skömmu og safnaði áheitum fyrir UNICEF. Auk þess hafa Íslendingar verið svo duglegir við að láta fé af hendi rakna í fjársöfnun UNICEF að starfsfólk samtakanna á vettvangi hefur fært þjóðinni sérstakar þakkir.

Lék á fiðlu á Menningarnótt

Ágústa Dómhildur Karlsdóttir er nýorðin 14 ára. Hún safnaði fé fyrir vannærðu börnin í Austur-Afríku með fiðluleik á Menningarnótt. Fiðlukassann hafði hún opinn fyrir framan sig og safnaði um 80.000 krónum í hann. Hún bætti síðan vð 35.000 krónum af afmælispeningunum sínum og færði UNICEF heilar 106.000 krónur.

„Ég sá auglýsingar frá UNICEF um söfnunina og datt þá í hug að safna fyrir þau,“ segir Ágústa. „Þetta gekk mjög vel. Framar mínum björtustu vonum og það voru margir sem gáfu og sumir gáfu frekar mikið,“ segir Ágústa og bætir því við að sér hafi fundist alveg sjálfsagt að gefa börnunum í Afríku 35.000 krónur úr eigin vasa.

Með klink í þremur bakpokum

Vinkonurnar Andrea, Diljá og Hugrún fóru að dæmi Ágústu Dómhildar og söfnuðu fé á Menningarnótt með flautuleik.
„Ég var að fletta dagblaði og sá sagt frá því að stelpa sem við þekkjum, Ágústa, væri að spila á fiðlu á Menningarnótt. Ég hringdi þá í Diljá og Hugrúnu og við ákváðum það bara á hádegi á laugardeginum að fara niður í bæ og safna peningum með því að spila saman,“ segir Andrea en þær vinkonurnar eru nýbyrjaðar í 8. bekk. „Við æfðum okkur smá fyrst og drifum okkur svo í bæinn.“
Stelpurnar söfnuðu tæpum 59.000 krónum á Menningarnótt og þar af voru 50.000 krónur í smámynt þannig að það var enginn smá burður þegar þær fóru með peningana til UNICEF. „Við þurftum að skipta klinkinu í þrjá bakpoka vegna þess að annars hefði þetta verið alltof þungt fyrir bökin á okkur,“ segir Andrea og bætir því við að söfnunina hafi verið mjög skemmtilega. „Það var ótrúlegt hvað fólk tók okkur vel og var jákvætt. Það var æðislegt og okkur var hrósað á milli laga.“

Ætlar að halda áfram að safna

Valný Lára Jónsdóttir Kerúlf er 12 ára og býr á Egilsstöðum. Hún hélt tombólu á bæjarhátíðinni Ormsteiti og safnaði þar 12.500 krónum en áður hafði hún gefið 5.000 krónur úr eigin vasa í söfnunina. Þá peninga vann hún sér inn með því að aðstoða mömmu sína á kaffihúsinu hennar. „Ég var alltaf að sjá fréttir frá Afríku í blöðunum og fannst þetta svo sorglegt og langaði að gera eitthvað til þess að hjálpa börnunum. Ég vildi bara gera eitthvað,“ segir Valný Lára.
„Tombólan gekk mjög vel og það komu mjög margir,“ segir Valný Lára sem er ákveðin í að halda áfram að safna. „Já, ég geri það alveg pottþétt.“

Þau þurfa peningana meira en ég

Ísak Parsi gerði sér ferð á skrifstofu UNICEF og færði samtökunum 15.000 krónur af afmælispeningunum sínum og sumarhýrunni. „Ég var að horfa á sjónvarpið og sá auglýsingu og myndir af börnunum í Sómalíu og ákvað að gefa þeim peningana vegna þess að þau þurfa miklu meira á þeim að halda en ég,“ segir Ísak.
Ísak segir tilfinninguna sem fylgir því að gefa sveltandi börnum peninga vera mjög góða. „Illugi Breki, vinur minn, fór með mér og þegar við vorum komnir þá vildi hann gefa líka. Hann var með 3.000 krónur á sér og lét þær í söfnunina.“

 

Ótal leiðir og ekkert ómögulegt

„Síðustu daga hefur verið mikill gangur í söfnuninni og einstakt að sjá hvernig grasrótin hefur tekið við sér. Og það er ekki síst ánægjulegt að sjá hvernig börn vilja ólm styrkja jafnaldra sína og koma þeim til aðstoðar,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.

„Við erum afar þakklát öllu þessu frábæra fólki, sem og þeim þúsundum Íslendinga sem lagt hafa söfnuninni lið,“ segir Sigríður en vel yfir 10.000 manns eru að baki framlagi Íslands.

„Okkur finnst þetta sýna í hnotskurn hvernig margt smátt gerir eitt stórt og hversu miklu er hægt að áorka í sameiningu. Þegar kemur að því hvernig hægt er að safna fé þá eru ótal leiðir enn fremur færar, líkt og dæmin hér að neðan sýna. Ekkert er ómögulegt.“
Enn er hægt að styðja við söfnunina á www.unicef.is og með því að hringja í síma 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908-5000 (5.000 krónur).
 





Til baka

Lisblindulist