Skuggalegur frændi
Tim Burton er með skemmtilegri og flippaðari leikstjórum sem starfa í hinni oft á tíðum hugmyndasnauðu Hollywood. Hann á að baki sérstaklega farsælt samstarf með leikararnum undurfagra Johnny Depp og þeir félagar eru nú mættir saman eina ferðina enn í vampírugríninu Dark Shadows.
Tim Burton vakti athygli og kátínu með draugamyndinni Beetlejuice árið 1988. Þar fór Michael Keaton hamförum í hlutverki samnefnds draugs sem gerði Alec Baldwin og Geenu Davis lífið leitt. Keaton og Burton átti vel skap saman og ári síðar tefldi Burton leikararnum fram í hlutverki sjálfs Leðurblökumannsins þegar Burton blés nýju lífi í þá sívinsælu hetju. Myndin sló hressilega í gegn enda fjörðið mikið þar sem Jack Nicholson sló eign sinni á myndina þegar Burton gaf honum lausan tauminn í hlutverki Jókersins. Vinsældum Batman fylgdi Burton eftir þremur árum síðar með Batman Returns og þar með skildu leiðir með Batman, Keaton og Burton.
Á milli Batman-myndanna sendi Burton frá sér hið ljúfsára nútímaævintýri um Edward Scissorhands. Myndin var bergmál af sögunni um Gosa spýtustrák en þar lék Johnny Depp dreng sem mátulega ruglaður vísindamaður býr til. Skaparinn fellur frá áður en honum auðnast að festa hendur á drenginn. Hann situr því uppi með ansi voldugt sett af garðklippum í stað handa sem gerir honum óhjákvæmilega erfitt að fóta sig í veröldinni.
Edward Scissorhands markaði upphafið á samstarfi Burtons og Depp sem ekki sér enn fyrir enda á en saman hafa þeir gert Ed Wood, Sleepy Hollow, Charlie and the Chocolate Factory, Corpse Bride, Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street, Alice in Wonderland og nú síðast Dark Shadows.
Í Dark Shadows leikur Depp Barnabas Collins sem flyst ungur að árum, ásamt forledrum sínum, frá Liverpool í Englandi til Bandaríkjanna árið 1752. Fjölskyldan litla flytur ekki síst til Bandaríkjanna til þess að reyna að hrista af sér bölvun sem hvílt hefur yfir ættinni. Þau setjast að í bænum Collinsport í Maine og eiga þar tuttugu náðug ár. Þá er Barnabas litli orðinn stór og er aðalgæinn í bænum. Ríkur, voldugur og óforbetranlegur glaumgosi. Honum er þó ekki ætlað að dvelja í þessari Paradís sinni lengi. Hann gerir nefnilega, að hætti glaumgosa, þau afdrifaríku mistök að svíkja hina fögru Angelique Bouchard í tryggðum.
Angelique er, illu heilli, norn og lætur ekki hafna sér þegjandi og hljóðalaust. Hún lætur sér ekki duga að drepa Barabas heldur býr hún honum örlög sem eru miklu verri en dauðinn. Hún breytir honum í vampíru og grefur hann síðan lifandi. Barnabas liggur síðan í gröf sinni í tvær aldir en rumskar árið 1972 og klórar sig upp á yfirborðið. Heimurinn sem mætir honum þar er vægast sagt frábrugðinn því sem hann þekkti áður og þessi föli glaumgosi þarf nú að reyna að ná áttum i heimi þar sem glitrar á diskókúlur og dansinn dunar.
Barnabas snýr aftur á ættaróðalið þar sem hann hittir fyrir afkomendur sína sem eru býsna skrautlegir og ekki síður ráðvilltir og ruglaðir en hann sjálfur. Glæsihýsi hans er í niðurníðslu og svipaða sögu má segja af niðjum hans. Þegar nornin Angelique skýtur svo upp kollinum, jafn brjálið og áður, hitnar heldur betur í kolunum og blóðsugan þarf að taka á honum stóra sínum til þess að komast undan háskakvendinu og bjarga ættingjum sínum um leið.


