29.06 2012 | Dægurmál

Slá brúðkaupsveislunni saman við fertugsafmæli Kristínar

Hjónakornin Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa boðið vinum sínum og ættingjum til tvöfaldrar veislu í Englandi um næstu helgi. Veislan er bæði brúðkaupsveisla þeirra og afmælisveisla Kristínar, en hún verður fertug á föstudaginn, 6. júlí. Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Björgólfs Thors, staðfesti við Fréttatímann að hjónin verði með veislu um næstu helgi en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.


Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans verður veislan öll hin glæsilegasta. Gestum frá Íslandi verður flogið út til Bretlands, þeir verða sóttir á flugvöllinn og keyrðir til veislunnar. Gestir fá engar upplýsingar um hvert ferðinni er heitið eða hvað bíður þeirra á áfangastað. Boðskortið í veisluna var 45 snúninga vínilplata. Meðal gesta sem boðið er til veislunnar eru vinir Björgólfs Thors, þeir Leifur Dagfinnsson framleiðandi hjá TrueNorth, Birgir Bielvedt athafnamaður og Skúli Mogensen fjárfestir. Þá er við búið að Björgólfur Guðmundsson og Þóra Hallgrímsson, foreldrar Björgólfs, verði meðal gesta.


Eins og Fréttatíminn greindi frá í fyrrasumar fór brúðkaup Kristínar og Björgólfs Thors fram í kyrrþey í nóvember árið 2010 eftir tólf ára sambúð. Athöfnin fór fram á borgarskrifstofum Rómar, Palazzo dei Conservatori. Skrifstofurnar eru við hið fornfræga torg Piazza del Campidoglio sem er hannað af Michaelangelo.


Látlaus athöfnin í kyrrþey í Róm þótti stinga nokkuð í stúf við eftirminnilega fertugsafmælisveislu Björgólfs Thors í febrúarmánuði 2007. Þá flaug Björgólfur Thor með fjölda manns til Jamaíku þar sem hópurinn dvaldi í nokkra daga við stanslaus veisluhöld og skemmtiatriði tónlistarmanna á borð við 50 Cent, Jamiroquai og Ziggy Marley, son goðsagnarinnar Bobs Marley. Þá bauð Björgólfur Thor til að mynda öllum bekknum sínum úr Versló. Ekki er búist við viðlíka veisluhöldum um næstu helgi – hermt er að fjöldi gesta hlaupi á tugum frekar en hundruðum.
Höskuldur Daði Magnússon
.(JavaScript must be enabled to view this email address) 





Til baka

Múrbúðin