Fréttatíminn

image description
12.08 2011 | Dægurmál

Tobba og Ellý: Banvæn blanda

Ellý Ármanns og Tobba Marínós eru nánar vinkonur og ætla að skella á skeið saman í nýjum sjónvarpsþætti á Skjá einum í vetur. Ellý mun samt
Ellý Ármanns og Tobba Marínós eru nánar vinkonur og ætla að skella á skeið saman í nýjum sjónvarpsþætti á Skjá einum í vetur. Ellý mun samt

Trúnaðarvinkonurnar Ellý Ármanns og Tobba Marínós fá kærkomið tækifæri til þess að vinna saman í fyrsta sinn þegar þær byrja með nýjan sjónvarpsþátt á Skjá einum í haust. Ellý var um árabil ein dáðasta sjónvarpsþula landsins en fær nú að spreyta sig í dagskrárgerð með Tobbu. Stelpurnar ætla að vera frjálslegar á skjánum og láta allt flakka þannig að það er mikill hiti og stuð í kortunum.

„Þetta verður stelpuþáttur en samt ekkert fliss og þannig læti,“ segir Tobba. „En við munum láta ýmislegt flakka. Ellý vinkona mín er nú svo opinská að ég sýp stundum hveljur,“ segir Tobba sem sjálf er þó þekkt fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. „Tobba skilur mig og stundum er hún hissa á því sem ég segi. Ég veit ekki hvort að hún sé tepran í þessu vináttusambandi,“ segir Ellý. „Jú, svona þegar ég hugsa um það þá er ég að kenna henni og Kalla [Karli Sigurðssyni, unnusta Tobbu] ýmislegt. Meira get ég ekki sagt.“

Tobba og Ellý ætla að fá gesti til sín í þáttinn, vera með innslög og margt fleira. „Það sem okkur dettur í hug verður bara gert. Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri, er búinn að lofa okkur því að við megum flippa að vild. Við erum með mjög mikið af umdeildum og krassandi hugmyndum. Hann segist ætla að gefa okkur lausan tauminn og standa með okkur í þessu öllu,“ segir Tobba.

„Ætli það megi ekki segja að við séum banvæn blanda,“ segir Ellý. „Og við ætlum bara að spyrja spurninganna sem aðrir þora ekki að bera upp og ræða mál sem aðrir leggja ekki í og Hilmar ætlar ekki einu sinni að grípa í tauminn ef við förum á brokk, eða skellum jafnvel á skeið.“
Tobba segist vera yfir sig ánægð með að fá tækifæri til þess að vinna með Ellý. „Við erum búnar að vera vinkonur lengi og ég þekki Ellý út og inn þannig að þetta verður leikandi ljúft.“

Tobba og Ellý kynntust fyrir nokkrum árum varð fljótt vel til vina og í dag telur Tobba Ellý til sinna allra nánustu vinkvenna. Þær vita báðar hvernig það er að vera á milli tannanna á fólki og Ellý viðurkennir að vissulega megi segja að þær séu umdeildar. „Ég myndi í það minnsta segja að bak mitt hafi breikkað í gegnum árin,“ segir Ellý og ekki er annað á henni að skilja að þær stöllur verði ófeimnar við að nálgast viðfangsefni sín af hispursleysi.

„Við munum fjalla um allt sem konur hafa áhuga á. Snyrtivörum, útliti, líkamsrækt og svo má auðvitað ekki gleyma kynlífinu,“ segir Ellý glottandi. „Það er líka svo spennandi að geta tekið á þessum málum myndrænt og það er eiginlega með ólíkindum að við fáum að láta hugmyndir okkar verða að veruleika í sjónvarpi.“

.(JavaScript must be enabled to view this email address)

 





Til baka