20.07 2012 | Frétt úr blaðinu

Starfslokasamningur Sigurjóns á huldu

Fréttatíminn fær ekki upplýsingar um starfslokasamning Sigurjóns Björnssonar, framkvæmdastjóra Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað kæru blaðsins frá. Starfsemi sjóðsins heyri ekki undir gildissvið upplýsingalaga. Eftirlaunasjóðurinn hefur frá 1. apríl verið í vistun Lífeyrissjóða starfsmanna sveitarfélaga. Framkvæmdastjóranum hafði ekki verið sagt upp viku fyrir flutninginn, þótt unnið hafi verið að honum í þó nokkurn tíma. Hann var eini starfsmaðurinn.

Fjármálaeftirlitið gagnrýndi starfsemi sjóðsins harkalega og í greinargerð í mars segir að ekki hafi verið ráðist í allar þær úrbætur sem eftirlitið fór fram á síðasta haust. Engar verklagsreglur, villur í bókhaldinu árum saman og skortur á yfirsýn voru meðal athugasemda. Þá kærði fjölskylda framkvæmdastjórans hann fyrir að féfletta foreldra sína. - gag





Til baka