Virði Iceland aukist um 13 milljarða frá hruni
Hrunið hefur ekki komið í veg fyrir að virði bresku matvöruverslanakeðjunnar Iceland hefur aukist um sextíu og sjö milljónir punda eða þrettán milljarða frá því að síðustu viðskipti með bréf í félaginu fóru fram fyrir þremur og hálfu ári – nokkrum mánuðum fyrir hrun. Ef gengismunur er tekinn með í reikninginn þá nemur hækkunin sjötíu og fimm milljörðum króna. Í ágúst 2008 seldi Fons, í eigu Pálma Haraldssonar, tuttugu og níu prósenta hlut í Iceland fyrir fjögur hundruð og þrjátíu milljónir punda eða sextíu og fimm milljarða miðað við gengi þess tíma.
Slitastjórnir Landsbankans og Glitnis hafa náð samkomulagi við Malcolm Walker, forstjóra Iceland, um að hann kaupi sjötíu og sjö prósenta hlut þeirra í Iceland-matvöruverslanakeðjunni á 1,2 milljarð punda eða rétt um 231 milljarð íslenskra króna. Heildarverðmæti Iceland í samningnum er 1,55 milljarður punda eða rétt um þrjú hundruð milljarða íslenskra króna. Talan var staðfest af slitastjórn Landsbankans fyrir Fréttatímann. Samkvæmt frétt í breska blaðinu Daily Telegraph fjármagnar Walker kaupin með lánum frá Deutsche Bank, fjárfestingarsjóðum og Landsbankanum. Slitastjórn Landsbankans á sextíu og sjö prósent í verslunarkeðjunni en slitastjórn Glitnis um tíu prósent hlut. Fyrir áttu Walker og samstarfsfélagar hans tuttugu og þrjú í verslanakeðjunni.
Þetta hljóta að teljast góðar fréttir fyrir slitastjórnina og íslensku þjóðina því hluturinn í Iceland hefur verið talinn verðmætasta eign hennar og mikilvægur hluti af endurgreiðslu Icesave. Íslenskir fjárfestar keyptu félagið undir lok árs 2004. Þá hét það Big Food Group og samanstóð af Iceland og Booker. Stærstu fjárfestarnir í því verkefni voru Baugur og Fons.
Eins og fram hefur komið í fréttum seldu Baugur og Fons hluti sína í Iceland á árinu 2008 til bæði Landsbankans og Glitnis. Margar fréttir hafa verið fluttar af því yfirverði sem talið var að bankarnir hefðu borgað fyrir bréfin í Iceland á þeim tíma. Baugur seldi átta prósent hlut til Landsbankans í mars 2008 fyrir sextíu milljónir punda. Miðað við það verð var heildarverðmæti Iceland þá 750 milljónir punda – helmingurinn af kaupverði Malcolms Walker nú. Mánuði seinna seldi Baugur Landsbankanum og Glitni hvorum um sig 7,5 prósent hlut og greiddi hvor banki 100 milljónir punda. Miðað við það verð var heildarverðmætið 1,33 milljarðar punda eða sextán prósent lægra en það er í dag. Ekki má síðan gleyma að slitastjórn Landsbankans fékk níutíu milljónir punda í arðgreiðslu á síðasta ári frá Iceland eða rétt rúmlega sautján milljarða íslenskra króna.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
.(JavaScript must be enabled to view this email address)
Verðmæti tífaldast á sjö árum
Það er óhætt að segja að kaup Baugs, Fons og fleiri aðila á Big Food Group árið 2004 fyrir þrjú hundruð milljónir punda hafi verið ein bestu viðskipti Íslandssögunnar. Innan Big Food Group voru Iceland Foods og Booker. Fyrirtækjunum var fljótlega skipt upp í tvö félög og hafa þau vaxið og dafnað. Eins og áður segir miðar nýsamþykkt tilboð Malcolms Walker við að verðmæti Iceland-keðjunnar sé 1,55 milljarður króna. Booker, sem er skráð í Kauphöllina í London, er metið þar á 1,1 milljarð punda. Ef tekið er með í reikninginn sex hundruð milljóna punda arðgreiðslur til eigenda félaganna á þessum tíma sem og sölu á fasteignum út úr Big Food Group í byrjun fyrir 100 milljónir punda má sjá að fjárfestingin hefur rúmlega tífaldast að verðmæti – úr þrjú hundruð milljónum punda í 3,3 milljarða. -óhþ
