09.03 2012 | Kaffitíminn
Ari flytur til mömmu Jóns
Ari Edwald, forstjóri 365, hefur fundið nýtt húsnæði fyrir sig, unnustu sína Gyðu Dan Johansen og ófætt barn þeirra. Hann mun flytja á Laufásveg 69, hús sem var áður í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eiginmanns stærsta hluthafa 365, en er nú í eigu móður hans Ásu Karenar.
Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að gera húsið upp svo það hæfi forstjóranum og hans frú. Meðal nágranna Ara eru Stefán Hilmar Hilmarsson, framkvæmdastjóri hjá 365, Skúli Skúlason í Subway og Helga S. Guðmundsdóttir, kvótadrottning frá Akureyri.


