20.07 2012 | Kaffitíminn

Barnalán hjá Tinu og Helga


Danska tónlistarkonan Tina Dickow og sambýlismaður hennar, tónlistarmaðurinn Helgi Hrafn Jónsson, eignuðust sitt fyrsta barn í síðustu viku. Þeim fæddist drengur að því er fram kemur í dönskum fjölmiðlum.

Í frétt BT segir að Tina Dickow, sem er ein kunnasta tónlistarkona Dana, hafi selt íbúð sína í Kaupmannahöfn í fyrrahaust og flust til Íslands með Helga. Þau skötuhjúin hafa undanfarið unnið að næstu plötu hennar og kemur hún út með haustinu.





Til baka

Veiði