27.04 2012 | Kaffitíminn

Boðskortið er bók

Bókamógúllinn Jóhann Páll Valdimarsson, helsti eigandi Forlagsins, heldur upp á sextugsafmæli sitt næstkomandi fimmtudag í veislusal í Grafarholtinu. Hallgrímur Helgason verður veislustjóri og óhætt er að segja að boðskortið, sem börn Jóhanns Páls útbjuggu, sé veglegt.

Um var að ræða litla bók þar sem finna má afmæliskveðju frá stórvini Jóhanns Páls, rithöfundinum Ólafi Gunnarssyni sem segist elska manninn, sem og fjölmargar myndir af afmælisbarninu frá ýmsum skeiðum ævi hans.
 





Til baka

ekki rusl