22.06 2012 | Kaffitíminn

Cruise keypti úlpur

Hollywoodstjarnan Tom Cruise dvelst nú hér á landi við tökur á stórmyndinni Oblivion. Leikarinn góðkunni heldur sig norður í landi og ku vera mjög áhugasamur um land og þjóð.

Eftir að hafa umgengist Íslendinga á tökustaðnum hreifst Cruise mjög af klæðaburði þeirra. Cruise var sérstaklega hrifinn af úlpum frá 66°norður og lét sig ekki muna um að kaupa tvær slíkar til að klæðast við tökurnar.
 





Til baka