20.07 2012 | Kaffitíminn

Didda senuþjófur

Sólveig Anspach frumsýndi á dögunum nýjustu kvikmynd sína, Queen of Montreuil, á kvikmyndahátíðinni í París. Hlaut myndin afar góðar viðtökur eins og lesa má um í Hollywood Reporter, sem er ein af biblíunum í kvikmyndabransanum. Þar er myndin ausin lofi og aukinheldur er þar talað um að Didda, sem leikur eitt aðalhlutverka ásamt með syni sínum Úlfi Ægissyni, sé senuþjófur myndarinnar.

Skáldkonan Didda virðist því vera að færa sig yfir í kvikmyndaleik í auknum mæli en hún hefur áður leikið við góðan orðstír í myndum Sólveigar, Stormy Weather og Skrapp út.





Til baka

ekki rusl