11.05 2012 | Kaffitíminn
Egill Helga á Hagaskólaballi
Sjónvarpsstjarnan og bloggarinn Egill Helgason verður ræðumaður kvöldsins á skólaballi Hagaskóla næstkomandi miðvikudag. Um er ræða skólaball fyrir alla nemendur skólans sem eru 45 ára og eldri og verða vínveitingar á ballinu – ólíkt því sem var þegar væntanlegir gestir stunduðu nám við skólann á sínum tíma. Ballið fer fram í Félagsheimili Seltjarnarness og munu skólahljómsveitirnar Cogito og Fimm á Richter troða upp.


