05.04 2012 | Kaffitíminn

Friðrik Ómar fjölmiðlafulltrúi í Baku

Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari verður í eldlínunni í Eurovision-söngvakeppninni 2012, sem haldin verður í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, dagana 22. til 24. maí næstkomandi. Friðrik Ómar verður þó ekki á sviðinu heldur utan þess. Gréta Mjöll Stefánsdóttir, annar flytjanda og lagahöfundur íslenska lagsins í ár, hefur valið hann sem sérlegan fjölmiðlafulltrúa sinn meðan á keppninni stendur.

Friðrik Ómar er eldheitur Eurovision-áhugamaður og fyrrum keppandi. Hann tók þátt í aðalkeppninni árið 2008, þegar keppnin var haldin í Serbíu, með Eurobandinu þegar hann og Regína Ósk sungu lagið This Is My Life með glæsibrag og höfnuðu í 14. sæti. - gag
 





Til baka

ekki rusl