19.04 2012 | Kaffitíminn

Geir Ólafs og Don Randi jassa helgina

Söngvarinn lífsglaði Geir Ólafsson hefur smalað saman einvala liði til þess að spila jass með goðsögninni Don Randi en þessi góðvinur Geirs er mættur í heimsókn frá Los Angeles. Þeir ætla að trylla lýðinn á Rósenberg á föstudags- og laugardagskvöld og láta einnig til sín taka á Silfurtunglinu við Snorrabraut.

Fabúla og Hafdís Huld syngja með Randi en að sögn Geirs er orðspor vinar hans slíkt að færri íslenskir tónlistarmenn hafi komist að en vildu þar sem allir vilji stíga á stokk með þessum reynslubolta sem hefur starfað með ekki ómerkari manni en Michael Jackson. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur öll sem fáum að vera með,“ segir Geir.
 





Til baka

Múrbúðin