18.05 2012 | Kaffitíminn

Guðni virðir eignaréttinn

Á þessum stað í síðasta blaði var sagt að Páll G. Jónsson, kenndur við Pólaris, hafi yfirgefið útgáfuhóf bókar Helga Ólafssonar, stórmeistara, um Bobby Fischer, þegar Guðni Ágústsson fordæmdi í ræðu hvernig þjóðarauðævum væri sundrað. Guðni segist í máli sínu alls ekki hafa verið að finna að því að Páll hyggðist selja muni sem hann á og tengjast skákeinvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Enda virði hann eignarréttinn og fetti ekki fingur út í hvernig fólk ráðstafi eigum sínum. Sneiðin hafi frekar verið ætluð menntamálaráðherra og þeim sem véla um sögulegar auðlindir. Páll hafi enda hlustað á ræðu hans til enda og kunnað honum bestu þakkir fyrir. Páll hafi síðan af öðrum ástæðum þurft að yfirgefa samkvæmið eftir að Guðni hafði lokið erindi sínu.





Til baka

Veiði