20.04 2012 | Kaffitíminn

Í útivistarfötin á síðasta vetrardegi

ZO-ON opnaði nýja verslun í Smáralind á síðasta degi vetrar á miðvikudaginn en ZO-ON selur undir merki sínu íslenska hönnun á útvistarfatnaði hvers konar auk golffatnaðar.

Fjöldi fólks lagði leið sína í opnunina en þar voru meðal annarra stjarnan úr Svartur á leik, Damon Younger, ritstýrurnar Kolbrún Pálína og Ellý Ármanns, útvarpskempan Sigvaldi Kaldalóns og Þór Bæring. Heimir og Kolla úr Bítinu á Bylgjunni, prótínhákarnir Ívar Guðmundsson og Arnar Grant, boltaspekingurinn Hjörvar Hafliðason og þá mætti söngvarinn Sverrir Bergmann á svæðið með nýju kærustuna sína Marín Möndu upp á arminn.
 





Til baka

Múrbúðin