30.03 2012 | Kaffitíminn
Róleg sala á stórtónleika
Miðasala á tónleikana Poppstjörnur í Hörpu á sumardaginn fyrsta, sem Einar Bárðarson stendur fyrir, hefur farið rólega af stað. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst eru nokkur hundruð miðar af eitt þúsund og fimm hundruð seldir. Miklu er tjaldað til á tónleikunum, sem eiga að höfða til yngri kynslóðarinnar, og fram munu koma Páll Óskar og Friðrik Dór, sem syngja dúet, Jón Jónsson, Steindi jr. og Bent, Blár Ópal, Ingó veðurguð og Eurovision-fararnir Greta Salóme og Jónsi. Á meðan uppselt er á heldri tónlistarmenn frá útlandinu vekur athygli hversu dræm miðasala er á tónleika með þessum helstu stjörnum íslenskrar tónlistar.


