08.06 2012 | Kaffitíminn

Rómeó og Júlía eldast

Vesturportshjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson hafa enn og aftur brugðið sér í hlutverk Rómeós og Júlíu á fjölum Borgarleikhússins. Tíu ár eru síðan þau frumsýndu verkið. Innan leikhópsins hefur talsvert verið gantast með aldur skötuhjúanna í hlutverkunum. Einhver gárunginn benti til að mynda á að börn þeirra Nínu Daggar og Gísla, sem eru sex ára og sex mánaða, eru nær sögupersónunum í aldri en foreldrarnir.
 





Til baka

ekki rusl