12.04 2012 | Kaffitíminn

Svarteyg baun á Íslandi

Printz Board, tónlistarstjóri og hljómsborðsleikari ofursveitarinnar Black Eyed Peas, er staddur hér á landi í skemmtiferð. Eftir því sem heimildir Fréttatímans herma hefur hann ferðast vítt og breitt um landið og kíkt á næturlífið.

Board hefur getið sér gott orð í tónlistarbransanum undanfarin ár, samið mörg af vinslæstu lögum Black Eyed Peas og unnið fyrir listamenn á borð við Macy Gray, Kate Perry, Shakiru og Busta Rhymes. Þótt Will.I.am og Fergie sé líklegast þekktust af meðlimum Black Eyed Peas er mál þeirra sem til þekkja að Board hafi átt einna mestan þátt í velgengni sveitarinnar.
 





Til baka

Veiði