Fréttatíminn

image description
17.02 2012 | Kaffitíminn

Útvarpslausi þátturinn vinsæll

Lítil ánægja var á sínum tíma með þá ákvörðun RÚV að slá þáttinn Orð skulu standa á Rás 1 af í sparnaðarskyni fyrir nokkrum misserum. Enn sýta menn þá ákvörðun. Stjórnandi þáttarins Karl Th. Birgisson dó þó ekki ráðalaus og fór með sitt fólk í Borgarleikhúsið þar sem þátturinn var á sviði en ekki í útsendingu vikulega.

Orð skulu standa eru nú kominn í Þjóðleikhússkjallarann þar sem hann verður á dagskrá á fimmtudagskvöldum. Karl er enn á sínum stað en nú eru honum til halds og trausts Sólveig Arnarsdóttir, leikkona, og Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, sem sjá um hvert að leiða sinn gest í gegnum spurningar Karls hverju sinni. Þátturinn hefur farið vel af stað og fengið lof áhorfenda. Þykja nokkur nýmæli fólgin í því að alþingismaður stigi á leiksvið vikulega.
 





Til baka