15.09 2011 | Matur og vín

Borðist sjaldan

Frosin jarðarber halda ferskleika bragðsins en missa allan glæisleika þegar þau þiðna. Þau eru í raun eins og fallið sufflé.
Frosin jarðarber halda ferskleika bragðsins en missa allan glæisleika þegar þau þiðna. Þau eru í raun eins og fallið sufflé.

Jarðarber eru því ekki eins og tómatar og epli sem má svindla á og tína hálfþroskuð og láta svo þroskast á leið á markað. Slíkir ávextir verða aldrei eins góðir og þeir gætu orðið en þeir verða seint alveg ónýtir. Þeir eru aldrei lakari en 50 prósent en aldrei betri en 65 prósent. Jarðarberin eru hins vegar tínd 100 prósent og versna eftir það. Ef við náum að kaupa þau fersk þremur dögum seinna eru þau komin niður í 65 prósent. Viku seinna er svo lítið eftir af þeim að það tekur því ekki að smakka þau.
Og þið eigið ekki að pirra ykkur á vondum jarðarberjum heldur láta eins og þau séu ekki til. Kaupið bara jarðarber sem virðast vera að springa af gleði og glansa af hreysti. Önnur ber eru ykkur ekki samboðin. Það er því best að borða jarðarber í miðri viku þegar nýjar sendingar koma í stórmarkaðina.


Galdurinn við jarðarberin er að þau bera fræin utan á sér. Þess vegna eru þau að utanverðu eilítið ertandi fyrir tunguna en silkimjúk að innan. Þegar þau vaxa þrýstast þau út og það verður til tómarúm á milli trefjanna. Fullþroska jarðarber eru því full af lofti, létt eins og sufflé. Þegar þau verða gömul og þurr geta þau því smakkast eins og frauðplast.
Ferskustu jarðarberin sem þið getið keypt eru frosin jarðarber. Þau eru fryst um leið og þau eru tínd fullþroskuð. Gallinn við frosin jarðarber er hins vegar að frostið eyðileggur byggingarefni bersins; þau verða slöpp, muskuleg og eiginlega óboðleg ein og sér. En þessi frosnu jarðarber má nota í sultur og kökubakstur. Og þar sem þau eru tiltölulega ódýr – allavega í samhengi við það ævintýri sem jarðarber eru í raun og sann – skuluð þið sturta þeim í miklu magni í kökurnar.
En ef þið ætlið aðeins að borða jarðarber þegar þið rekist á fullkomin ber, þá munuð þið borða þau svo sjaldan að þið munuð aðeins vilja þau með rjóma. Best er að blanda mascarpone til helminga í rjómann – hann er þá síður væminn. Eða 1/3 sýrðan rjóma til að gefa rjómanum smá skerpu.





Til baka

Múrbúðin