29.07 2011 | Matur og vín

Fasta eykur neyslu

Beðist fyrir í Mekka. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Imgaes
Beðist fyrir í Mekka. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Imgaes

Þar sem daglegar bænir múslima miðast við sólargang raðast þær undarlega niður hér uppi við heimskautsbaug þegar sólin hangir uppi stærstan hluta sólarhringsins. Á frídegi verslunarmanna, fyrsta degi ramadan, eru sólsetursbænir klukkan 22:32, næturbænir 00.02, dögunarbænir 3.03 og bænir við sólarupprás 4.33. Þegar það eru níu tímar á milli nætur og dögunarbæna við miðbaug eru það ekki nema þrír tímar á mánudaginn. Strangtrúaðir geta því orðið vansvefta daginn eftir – ofan á hungrið.

Í löndum íslams eykst öll matarsala meðan á ramadan stendur. Það stafar fyrst og fremst af veisluhöldunum eftir sólsetur, Iftar. Þá borða fjölskylda og vinir saman í miklum fögnuði. En við vitum líka að það er stórhættulegt að fara út í búð svangur. Vanalega komum við þá heim með alltof mikið af mat.

Flestir hátíðasiðir sem við þekkjum hafa verið settir á legg af kaupmönnum – í það minnsta viðhaldið af þeim eða aukið við. Jólagjafir, jóltré, bolludagsbollur, páskaegg. Og við erum farin að taka upp svona siði frá Bandaríkjamönnum sem búa við enn þróaðri kaupmannastétt en við; konfekt á Valentínusardegi, kalkúni á þakkagjörð, sælgæti á hrekkjavöku. Í ljósi aukinnar matarverslunar á ramadan ættu Hagar og Norvik ef til vill að hvetja fólk til að fasta oftar.

Sala á magamixtúrum hvers konar eykst mjög yfir ramadan í löndum íslams. Það bendir til að einhverjir taka föstuna (og veisluna) á hörkunni – ekki síður en hófsemdinni og hógværðinni.

Ef menn vilja taka ramadan með trompi og biðja fimm sinnum á dag verða þeir að snúa í átt að Mekka. Og það er ekki eins auðvelt og menn gætu haldið að finna áttina þangað. Það dugar ekki að draga stystu línu á korti á milli Reykjavíkur og Mekka (svo dæmi sé tekið). Jörðin er nefnilega hnöttótt en ekki tvívíð. Stysta loftlína til Mekka er þar af leiðandi næstum því í aust-suðaustur. Ef menn vilja vera nákvæmir geta þeir kropið á Bústaðaveginum við Útvarpshúsið og snúið andlitinu austur eftir veginum í átt að Grímsbæ.

Þeir sem sárvorkenna sér yfir föstuna og eiga erfitt með að bíða eftir að maturinn verði tilbúinn geta keypt sér ramadan-dagatöl. Þau eru næstum alveg eins og jóladagatölin; 29 gluggar sem þið opnið, einn á dag. Og á bak við leynist einn sælgætismoli sem rífur burt mesta hungrið og fleytir ykkur fram að veislunni.





Til baka

ekki rusl