20.07 2012 | Matur og vín

Fólk biður um sæti Tom Cruise á Sushisamba

Erlendir fjölmiðlamenn hafa flogið hingað til lands og komið við á veitingastaðnum Sushisamba eftir að ofurstjarnan Tom Cruise snæddi þar síðustu máltíðina með spúsu sinni, Katie Holmes, fyrir skilnað. Þeir sækjast eftir fréttum af kvikmyndastjörnunum.

„Við gefum engin svör,“ segir Eiður Mar Halldórsson yfirmatreiðslumaður sem segir einnig fjölda gesta koma og biðja um að fá að sitja í sætunum sem þau sátu í þetta örlagaríka kvöld í júnílok.

Mikil aðsókn hefur verið að veitingastaðnum frá því að hann opnaði fyrir tæpu ári síðan. Nú síðustu viku hefur japanskur sushigerðarmeistari, Shimhara, verið þar sem gestakokkur. Eiður segir hann hafa vafið sushi-rúllur um allan heim; til dæmis í Bandaríkjunum, Grikklandi og Mónakó. Hann sé um þessar mundir eini meistarinn í sushi-gerð á landinu.

Shimhara fer af landi brott um helgina en Eiður segir vonir standa til þess að hann komi brátt aftur og þá jafnvel til frambúðar. - gag





Til baka

Múrbúðin