Sætar hnetur og sætt te
Víða við austan og sunnan vert Miðjarðarhafið tíðkast ekki að snæða ábæti á eftir mat. Þessar þjóðir eru þó öngvir aukvisar þegar kemur að sætindum. Þvert á móti er eiginlega hvergi hægt að finna aðra eins listamenn í meðförum sykurs, hunangs og annarra sætinda. Tyrkneskir eða líbanskir bakarar eru slíkir listamenn að það væri helst að franskir sætindameistarar stæðust þeim snúning.
Þekktasta afurð sætindaeldhúss þeirra er baklava; hnetur í fílódeigi, baðaðar í sírópi. Og það er mjög auðvelt að baka baklövu heima (þökk sé heilögum Pillsbury og tilbúnu fílódeigi).
Takið um 3 bolla af hnetum (sumir nota pistasíu-hnetur eingöngu, aðrir blanda möndlur til helminga og enn aðrir nota valhnetur einar eða í bland við möndlur og pistasíur) og setjið í matvinnsluvél. Bætið í ½ bolla af sykri og örlitlu af austurlensku kryddi (t.d. teskeið af kanil, ½ teskeið af kardimommum og ¼ teskeið af negul). Myljið hneturnar í vélinni þar til þær eru eins og grófkorna sandur - eða fínkorna möl.
Bræðið eitt smjörstykki við vægan hita. Smyrjið með því eldfast mót og leggið síðan eitt lag af fílódeigi í botninn og upp með hliðinum, smyrjið aftur og leggið nýtt lag yfir. Og svo aftur og aftur; sirka 6-10 sinnum. Hellið þá hnetumulningnum í fatið og breiðið 6-10 lög af fílódeigi yfir (og alltaf smjör á milli). Smyrjið efsta lagið og setjið fatið inn í ískáp í um klukkustund. Þegar smjörið er orðið hart og hefur fest saman deigið skuluð þið skera tígulmunstur í baklövuna, alveg niður í botn. Setjið hana þar næst í 190° heitan ofn í um hálftíma eða þar til hún er orðin gullin og efstu deigblöðin farin að lyftast.
Á meðan baklavan bakast búið þið til einfalt síróp. Setjið 2 bolla af sykri í pott, 1½ bolla af vatni, ½ bolla af hunangi, börk af hálfri sítrónu og slatta af rósavatni (ef þið eigið ekki svoleiðis getið þið sett einn negulnagla í staðinn). Sjóðið skamma stund, fjarlægið börkinn og naglann og hellið hægt en örugglega í raufarnar á baklövunni um leið og þið takið hana úr ofninum.
Með þessu er ómissandi að hita grænt te (gunpowder hentar best), setja út í það rifna mintu og sykra vel.


