09.07 2012 | Matur og vín

Selja pizzur allan sólarhringinn

„Ungt fólk og fólk í vaktavinnu verslar á nóttunni og ætlum við því að gera tilraun með að bjóða upp á pizzur allan sólarhringinn í sumar,“ segir Magnús Hafliðason, rekstrar- og markaðsstjóri Domino‘s á Íslandi. Dominos verður með opið allan sólarhringinn á útsölustað sínum í Skeifunni. Ekki verður þó boðið upp á heimsendingu.
„Æ fleiri verslanir og þjónustufyrirtæki eru með opið allan sólarhringinn og virðist það ganga vel. Við ætlum að prófa þetta í sumar þegar fólk er kannski meira vakandi fram á nótt,“ segir Magnús.
Andrés Magnússon, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er hlynntur þessari þróun. „Við höfum lagt áherslu á frelsi á öllum sviðum og er afgreiðslutími verslana og þjónustufyrirtækja eitt af því sem við höfum barist fyrir,“ segir hann.
Aðspurður segir hann að samkvæmt upplýsingum frá þeim fyrirtækjum sem eru með opið allan sólarhringinn er það einkum ungt fólkið að verslar fram yfir miðnætti. „Síðan er rólegt til fjögur eða fimm en þó nokkuð af fólki sem vinnur vaktavinnu virðist vilja nýta sér að geta verslað á nóttunni,“ segir Andrés.





Til baka

Veiði