Úrbeinað og álpappírslaust
Sé lærið úrbeinað fer svo ennþá minna fyrir því þannig að það er um að gera að æfa úrbeiningartæknina. Og... álpappír er ónauðsynlegt hjálpartæki og þarf ekki að fara saman með grillaðri stórsteik. Athugið það.
Svona er farið að: Finnið uppáhalds kryddjurtir fjölskyldunnar og hvort þær eru þurrkaðar eða ferskar fer einfaldlega eftir smekk. Ef ferskar er best að saxa smátt fyrst. Jurtunum er svo blandað saman við örlítið af kryddi, enn eftir smekk og blöndunni nuddað vandlega á lærið. Góð blanda á lamb er Rósmarín og timían ásamt með kóríander-og paprikudufti og ef það er örlítið af túrmerek í húsinu er um að gera að splæsa smá af því líka. Nuddið lærinu upp úr kryddjurtunum með svona um það bil hálftíma klukkustundar fyrirvara. Hitið grillið vel og loka kjötinu á öllum hliðum. Piprið vel og myljið smotteríi af grófu salti yfir. Þá er að slökkva svo undir kjötinu en hafa kveikt annarstaðar í grillinu og á með lokið. Já, það verður að vera lok. Haldið hitanum í um það bil 170 gráðum.
Inni í grillinu! Gott er að hafa við hendina blöndu af olíu eða smjöri og smá sojasósu sem notuð er til að pensla bitann af og til. Ekki samt vera að opna og loka of oft. Þá hverfur allur hitinn út í svala sumarnóttina. Elda svo þangað til hitamælirinn segir stopp – hingað og ekki lengra.
Rautt 55 gráður
Medium 60 gráður
Fulleldað 65 gráður


