04.05 2012 | Menning

Bíódómur:Magnaður mannskapur snýr bökum saman

The Avengers er gríðarlega vel mönnuð mynd bæði hvað varðar ofurhetjur og ekki síður leikara og hafi einhver efast um að Joss Whedon væri rétti maðurinn til þess að stýra þessu magnaða Marvel-hetjugalleríi inn á réttar brautir þá hlýtur sá hinn sami að þurfa að éta hattinn sinn með remúlaði og rauðkáli vegna þess að hér klikkar ekkert og The Avengers er ekki aðeins ofurhetjumynd í hæsta gæðaflokki heldur einnig frábær skemmtun sem snertir strengi í hjörtum nörda á öllum aldri.

Eftirvæntingin eftir myndinni hefur að vonum verið mikil enda er búið að kynda vel undir á síðustu árum með tveimur myndum um Iron Man, auk mynda um The Hulk, Captain America og Þór. Samuel L. Jackson lét ábúðarmikill til sín taka, sem Nick Fury, í Iron Man 2 og í bláenda hinna myndanna skaut hann upp sínum eineigða kolli og gaf tóninn fyrir það sem koma skyldi og ósamstæður hetjuhópurinn stendur við öll fyrirheit og undir öllum væntingum undir styrkri stjórn Fury. Og nú fær Jackson loks að njóta sín fyrir alvöru í hlutverki þessa grjótharða nagla.

Bragðarefurinn Loki, sem gerði hálfbróður sínum Þór, lífið leitt í Thor heldur uppteknum hætti og skipuleggur nú árás á jörðina, með einhverjum andskotans árum, utan úr geimnum. Ljóst er að enginn mannlegur máttur mun hrinda áhlaupinu þannig að Iron Man, Þór, Captain America og Hulk neyðast til að snúa bökum saman, dyggilega studdir hinum mjög svo mannlegu en þrautþjálfuðu leigumorðingjum Hawkeye og Black Widow.

Þótt aðalpersónurnar hafi nú þegar stimplað sig rækilega inn í eigin bíómyndum gefur Whedon sér góðan tíma til þess að smala þeim saman og allir fá sitt pláss. Robert Downey er vitaskuld frekur til fjörsins í hlutverki Tony Stark/Iron Man og er að vonum lang skemmtilegastur, á bestu línurnar og er ómótstæðilegur sem fyrr. Scarlett Johanssen er fáránlega flott Black Widow, funheit og engu minni gaur en strákarnir. Bruce Banner/Hulk hefur aldrei verið jafn áhugaverður og nú í meðförum þess frábæra leikara Mark Ruffalo og Jeremy Renner festir sig enn frekar í sessi sem aksjónhetja.

Tom Hiddleston (Loki) er í miklu stuði, Clark Gregg er traustur sem klettur í hlutverki, hægri handar Fury, Agent Coulson og ekki klikkar Stellan Skarsgård frekar en fyrri daginn. Chris Hemsworth og Chris Evans eru mátulega sterílir og þurrir Þór og Captain America en svalir eru þeir þótt persónur þeirra afnist ekki á við hina breysku Stark og Banner.

Þetta magnaða gengi sér til þess að hvergi er dauðan punkt að finna í þessari frekar löngu mynd og aðdragandi lokauppgjörsins er eiginlega skemmtilegri en bardagaveislan í lokin en ó boj, ó boj hvað sá bardagi er meiriháttar. Myndir af þessu tagi verða ekki mikið betri en The Avengers.
The Avengers ****


Þórarinn Þórarinsson





Til baka

Veiði