Fréttatíminn

image description
17.02 2012 | Menning

Bíódómur:Seigdrepandi loðmulla

Fyrsti hluti síðari Stjörnustríðsþríleiks George Lucas, The Phantom Menace, birtist aðdáendum eldri geimóperunnar árið 1999, eftir sextán ára bið eftir framhaldi af ævintýrum sem gerðust fyrir langa löngu í vetrarbraut langt, langt í burtu.

Vonbrigðin voru gríðarleg. Töfrum, fjöri og klisjukenndri (en dásamlegri) dramatík gömlu myndanna virtist hafa verið sturtað beint ofan í botnlaust gímald saarlac á Tatooine, og eftir stendur þvæld moðsuða leiðinlega pólitískra plotta, óþolandi krakki að leika Anakin Skywalker, tölvugerði viðbjóðurinn Jar Jar Binks og svo var Mátturinn, þetta undarlega afl sem bindur allt líf í vetrarbrautinni saman, orðinn að einhvers konar blóðsjúkdómi. Einhverju sem hægt er að mæla í hverjum og einum með því að telja blóðkorn eða eitthvað álíka gáfulegt.

Sjarmanum hafði semsagt verið skipt út fyrir seigdrepandi loðmullu og steingeldar tölvubrellur; Yoda er eðlilegri sem brúða með lúkuna á Frank Oz upp í rassgatinu á sér en sú sálarlausa flatneskja sem húskarlar Lucas hjá ILM tölvugerðu fyrir nýju myndirnar.

Ljósu punktarnir eru fáir. Natalie Portman er undurfögur og heillandi Amidala, Ewan McGregor fann sig vel sem Obi-Wan en fékk ekki úr nógu miklu að moða frekar en Darth Maul sem er frábært og töff illmenni en skammarlega vannýttur í myndinni. Kletturinn í þessum þvælingi öllum saman er svo Liam Neeson sem Jedi-meistarinn Qui-Gon Jinn.

Geislasverðabardagarnir voru líka flottir sem og kappreiðar í anda Ben-Húr þar sem Anakin litli fær að sýna hvað í honum býr í atriði sem er eins og hannað fyrir tölvuleik. Þetta nýtur sín svosem ágætlega í þrívídd en The Phantom Menace lagast samt ekkert við það að þriðju víddinni er bætt við. Jar Jar er þarna ennþá, sagan er jafn þvæld og asnaleg og einhvern veginn hefði maður haldið að Lucas og fólk hans hjá ILM hefði getað gert þrívíddina betur þótt kraftaverk hefði þurft til þess að fela þá staðreynd að Lucas er vonlaus sögumaður.

Samt nauðsynlegt að sjá Star Wars í bíó, þetta er einhvern veginn þriðja víddin á þeim heimi öllum sem á bara eftir að batna á næstu árum þegar eldri myndirnar koma í þrívídd hver af annarri.

Star Wars Episode I: The Phantom Menace 3D *

Þórarinn Þórarinsson
 





Til baka

Lisblindulist