Fastir liðir
Höfundurinn á bak við Stellu Blómkvist hefur merkt sig kirfilega á spjöld bókmenntasögunnar. Í hartnær áratug hefur honum tekist að sitja í felum og skrifa spennubækur um lögfræðinginn Stellu, höfundurinn hefur rambað milli forlaga og þrátt fyrir sannindin þjóð veit þá þrír vita er Blómkvist enn stærsta gátan í höfundatalinu – að því leytinu til að ekki er almennt kunnugt hver felst á bak við nafnið.
Þrátt fyrir frægðina og forvitni blaðamanna er Blómkvist ekki söluhár höfundur – vafalítið hafa margir sökum forvitni hnusað að bókum karlmannsins sem skrifar undir nafni konu en kynnin af sögunum um Stellu, sem eru að nálgast tuginn, hafa líklegast orðið til þess að frekari forvitni var fljótsvalað. Sögur Stellu um Stellu eru frumstæðar spennubókmenntir. Þótt textinn renni lipurlega er klisjan hér í hávegum höfð, persónusköpun er ófrumleg og kunnugleg, samtölin kaldir réttir og plottin gömul og slitin.
Nú má í sjálfu sér fagna því að þagmælska útgefenda dugi svo vel sem raun ber vitni, líka má fagna því að þeir telji ekki eftir sér að skella fram slökum spennusögum eftir innfædda – jafnvel þó þær séu undir dulnefni. Afþreyingartextar eftir innlenda höfunda eiga fullan rétt á sér og almenningur hefur undanfarna áratugi tekið þeim fagnandi, jafnvel bundnum í spjöld og á háu verði. Slíkar bækur hafa runnið út í þúsundatali og haft yfirhöndina í slagnum við höfunda sem eiga brýnna erindi á markað, afþreyingin hefur lagt undir sig markaðinn og á sumum bæjum má sjá merki þess að útgefendur vilji eiga það sitt helsta erindi í lífinu að telja almenningi trú um að sumir reyfarahöfundar séu hreinir snillingar í frásagnarlistinni, vitna gjarna til erlendra blaða því til sönnunar, fara gjarnan offari í oflofinu sem þeir sveipa sína dýrmætustu skjólstæðinga í trausti þess að fjölmiðlamenn gleypi bullið hrátt og komi því á framfæri við trúgjarna lesendur. Sem gengur eftir.
Stella ætti þannig að skipa svipaðan sess og Yrsa – svo dæmi séu nefnd. En slíkar barbabrellur takast ekki alltaf. Morðið á Bessastöðum er slök spennusaga, klisjukennd, ófrumleg og óspennandi. -pbb
*
Stella Blómkvist
Morðið á Bessastöðum
Mál og menning, 287 síður, 2012.


