Feður og konur þeirra
Kápumynd nýrrar skáldsögu hollenska rithöfundarins og sjónvarpsmannsins Hermans Koch sýnir á rauðum fleti hlustunarpípu læknis sem einhver hefur lagt frá sér flækta og snúna. Myndin er myndlíking, boði um efni skáldsögunnar Sumarhús með sundlaug sem komin er út í afbragðs þýðingu Rögnu Sigurðardóttur nú rétt ári eftir að sagan kom út á frummálinu. Heiti sögunnar vísar til helgra frídaga fjölskyldu; hita, nektar einkalífs í nálægð vatns og birtu. Læknir í sumarleyfi með fjölskyldu eru merkin sem okkur eru gefin.
Fyrir tveimur árum kom út á sama forlagi saga Kochs, Kvöldverðurinn, og naut vinsælda, vakti athygli – verðskuldað. Millistéttin evrópska er viðfangsefni hans, siðir hennar og siðgæði, hvað leynist undir fáguðu velferðaryfirborði nútímamannsins; karla, kvenna og unglinga. Áreksturinn sem höfundurinn notar til að bregða kviksjá undir yfirborð okkar tíma er þar eins og hér framferði unglinga, framferði sem um síðir kemur í ljós, óbeislað, öfgakennt og með öllu ókunnugt foreldrum þeirra.
Í Sumarhúsi velur Koch sér sögumann heimilislækni, föður tveggja dætra, að því virðist farsælan mann í hjónabandi og starfi. Marc lifir skipulögðu lífi: Sinnir sjúklingum sem leita til heimilislæknis af samviskusemi, greinir sjúkleika þeirra sem oft er áunninn vegna lífernis, hlustar á þá. Staða hans gefur honum aðgang að boðskerfi menningarelítunnar og úr þeim hópi fær hann kúnna. Í raun fyrirlítur hann sjúklinga sína, ofbýður líkamleg hrörnun þeirra, greining hans er í senn á sál og líkama sjúklinga. Lesandi fær snemma í fyrstu persónu sögu hans skýra huglæga afstöðu sem er bæði tilfinningaleg og siðleg. Kock er farinn að kokka í okkur skilning, leika sér af mikilli smásmugulegri færni með huga lesandans.
Nema hvað: Einn skjólstæðinga Marc er sviðsleikarinn Ralph, svelgur á mat, vín og víf, lífsnautnamaður kvæntur bældri og ófullnægðri eiginkonu. Ralph leitar læknis vegna meins og það tekst kunningsskapur. Ralph og kona hans bjóða Marc og fjölskyldu í heimsókn í sumarbústað með sundlaug. Þar gerast atburðir sem leiða sögumann okkar á vit örlaga sinna, hann sem telur sig hafa allt á hreinu verður leiksoppur.
Í hinni stóru mynd er Koch að fást við siðræna tvöfeldni, karlmenn sem líta á konur sem bráð, konur sem líta á karlmenn sem leikfang, tæki. Niðurstaða Koch er ekki augljós heldur verður lesandi hver fyrir sig að spá og ráða sinni niðurstöðu. Koch er afhjúpandi höfundur, ekki aðeins á siði og siðgæðisbrest vestrænna samfélaga, heldur ekki síður lýsir hann upp hugarfylgsni menningar okkar og um leið skúmaskot lesandans. Þess utan er hann nöturlega fyndinn í sparlegri útmálun atvika og aðstæðna og kann að búa til spennu sem heldur lesanda á nálum. Hér er ekkert sem sýnist.
Dirfska Koch felst ekki síst í að hann hikar ekki við að draga óþægileg efni fram í dagsljósið og veitir athygli djúpstæðu dýrslegu eðli tegundarinnar; karldýrsins í dýrum hörjakkafötum – kvendýrsins í stuttum kjól. Kynhlutverkin eru í skoðun hans djúpstætt menningarlegt fyrirbæri sem við teljum okkur trú um að liggi ofarlega í hillusamstæðunni sem lífið á að vera. En svo verða atvik sem hleypa skepnunni út og forskrifað eðli okkar heimtar sitt.
Páll Baldvin Baldvinsson
*****
Sumarhús með sundlaug
Herman Koch
Ragna Sigurðardóttir þýddi
JPV, 366 síður, 2012.


