18.05 2012 | Menning

GusGus tekknótrylla dansara

Listahátíð í Reykjavík hefst í dag, föstudag, og mun lífga upp á borgarbraginn út fyrstu helgina í júní. Margt verður um dýrðir á hátíðinni, þar á meðal samstarfsverkefni hljómsveitarinnar GusGus og Íslenska dansflokksins, Á vit, þar sem kraftar ólíkra listforma renna saman. Hannes Þór Egilsson er einn ellefu dansara sem taka þátt í sýningunni sem hann segir ekki síst spennandi þar sem í henni stíga allir út úr sínu vanalega umhverfi.

„Þetta hefur gengið mjög vel, verið mjög gaman enda eru strákarnir í GusGus mjög jákvæðir og til í að feta nýjar slóðir,“ segir Hannes Þór og bætir við að í Á vit mætist dansverk og tónleikar á miðri leið. „Þannig að allir þurftu að gera málamiðlanir og útkoman verður sérstök þar sem bæði þeir og við erum að upplifa eitthvað og gera eitthvað sem við höfum ekki gert áður. Við erum venjulega með okkar sýningar í leikhúsum en erum núna í Hörpu og erum dálítið að taka þetta leikhússeliment inn í tónleikahöllina.“

Hannes Þór fer ekki leynt með ánægjuna sem dansararnir hafa fengið út úr því að vinna með tónlist GusGus sem er frumsamin fyrir verkið. „Við dansararnir byrjuðum að vinna saman og fengum svo geisladisk frá GusGus og fylltumst innblæstri og ánægju. Þetta er geðveikt flott. Ekki dæmigert tekknó heldur einhvern veginn öll flóran. Þarna eru fiðlur, rólegt lag og auðvitað er svo smá tekknó í þessu. Þetta er mestmegnis frumsamið fyrir okkur og þarna eru margir faktorar sem við gátum nýtt okkur.“

Hannes Þór segir dansarana einnig hafa verið í óvenjulegri stöðu þar sem þeir semji dansinn sjálfir. „Við erum vön að hafa danshöfunda yfir okkur og vera verkfæri í höndum þeirra en núna erum við ellefu manns að semja dansa þannig að þetta er svolítið framandi.“
Inn í sýninguna fléttast síðan dansmyndbönd sem Íslenski dansflokkurinn vann með Reyni Lyngdal fyrir all nokkru. „Í hugmyndavinnunni byrjuðum við á að skoða þessi myndbönd. Hvort við gætum tekið eitthvað frá þeim og nýtt í þetta og sumt af myndböndunum rataði inn í heildarverkið. Ég veit ekki alveg hverju áhorfendur mega búast við en þetta verður eitthvað mjög sérstakt. Þetta eru náttúrlega GusGus og þeir eru rosalegir sviðsperformerar á eigin tónleikum og þetta verður einhver samblanda. Við ætlum að reyna að hafa stuð í þessu og þetta verða hvorki hefðbundnir tónleikar né hefðbundið dansverk. Þetta verður öðruvísi og þá örugglega sérstaklega fyrir fastagesti Íslenska dansflokksins. Þetta verður eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað áður enda er meira tekknó í þessu en allt verður þetta bara að koma í ljós en við erum í það minnsta rosalega ánægð með að hafa fengið svona flotta hljómsveit til liðs við okkur.“





Til baka

Múrbúðin