Hvít þrælasala í Svíþjóð
Roslund & Hellström er tvíeyki frá Svíþjóð sem hefur á liðnum árum sent frá sér röð spennusagna. Fyrsta sagan þeirra, Ófreskjan, kom út í fyrra hjá Uppheimum, og var upphaflega gefin út 2004, nú er önnur bók þeirra komin út hjá sama forlagi og Sigurður Þór Salvarsson þýðir. Alls munu þessir skáldbræður eiga sex bækur á markaði, nýjasta sagan þeirra, Tveir bræður, kom út í Svíþjóð fyrir fáeinum vikum.
Box 21 rekur nokkrar sögur samtímis: hér eins og í Ófreskjunni er Evert Gren, miðaldra og mæddur rannsóknarlögreglumaður tengillinn: Forn andstæðingur hans verður látinn laus innan skamms og Grens er staðráðinn í að koma honum aftur bak við lás og slá – hvað sem það kostar. Fanturinn varð þess valdandi að eiginkona Grens hefur verið á hæli, mikið skert andlega eftir lögregluslys sem Grens kennir óvini sínum um. Grens reynir að rekja ferðir fangans þá hann er laus með því að yfirheyra ungan fíkil en án árangurs. Skömmu síðar er Grens kallaður í íbúð þar sem átök hafa átt sér stað og þar er tveimur litháískum konum haldið föngnum sem kynlífsþrælum: þar með eru helstu upphafsþræðir verksins ljósir, en það gerist á nokkrum klukkustundum – þó forsögur og eftirmál skagi út úr sögunni.
Roslund & Hellström eru býsna miskunnarlausir í lýsingum sínum, plotta sögurnar vel, og draga hvergi af sér. Grens er brotinn maður, sérstæður ruddi og reynist ekki heilagur þegar á hólminn er komið. Hér skarast áhugasvið löggu og glæpamanna og líkt og í Ófreskjunni ná þeir félagar að snúa á lesandann fram á síðustu andartök sögunnar, búa til hverfipunkt sem er í senn óvæntur og lýsandi. Framvinda sögunnar er mjög spennandi á löngum kafla og mörgum minni persónum bregður fyrir sem eru fagmannlega settar saman og gera plottið og söguumhverfið sannfærandi.
Eins og margir norrænir krimmar er Box 21 samfélagsádeila, kafar ekki djúpt í rætur glæpsins sem hér er í sjónarmiðju: hversvegna leita karlar vísvitandi eftir því að sækja heim fangnar konur og misbjóða þeim kynferðislega, þrátt fyrir að slík hegðun sé utan þeirra hóps talin ósæmileg, lögbrot og geti leitt yfir þá mikla ógæfu. Oftast er bent á karla sem sitja hátt í veldisstiga samfélagsins sem einhverja skýringu á því að svona starfsemi er óáreitt. Sjaldan er litið víðar: hversvegna er samfélögum okkar svo erfitt að uppræta mansal á okkar dögum?
Páll Baldvin Baldvinsson
***
Roslund & Hellström
Box 21
Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
Uppheimar, 410 bls. 2012.


