Ljótu hálfvitarnir leika undir hjá Múnkhásen
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði frumsýndi á fimmtudagskvöld nýtt íslenskt leikverk með söngvum sem byggir á ótrúlegum ýkjusögum hins heimsþekkta lygara: Þýska barónsins Múnkhásen.
„Það er gamall draumur Ágústu Skúladóttur leikstjóra að setja upp ævintýri Múnkhásen og við í fátæka leikhúsinu hérna suður í Hafnarfirði ákváðum bara að stökkva út í djúpu laugina og gera þetta almennilega. Við leggjum allt undir og ætlum að gera þetta með bravúr,“ segir Lárus Vilhjálmsson hjá Gaflaraleikhúsinu.
Lárus segir Ágústu hafa tekist að smala saman einvalaliði og að valinn maður sé í hverju rúmi. Sævar Sigurgeirsson skrifar handritið og semur tónlistina í verkinu ásamt félögum sínum úr hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum. Sævar er einn höfunda áramótaskaupa síðustu ára og leikstjóri skaupanna, Gunnar Björn Guðmundsson, stígur nú á leiksvið aftur eftir nokkurt hlé. Með honum á sviðinu verða meðal annarra Gunnar Helgason, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Magnús Guðmundsson sem meðal annars hlaut Grímutilefningu fyrir leik sinn í Fool 4 love.
„Það vill nú svo til að það eru tveir Múkhásenar í sýningunni. Sá eldri, sem Gunnar Helgason leikur en hann segir söguna, og síðan leikur Magnús Guðmundsson Munkhásen á yngri árum.“ Mikið er sungið í verkinu og Lárus segir leikhúsið tefla fram frábærri söngkonu, Söru Blandon, og Ágústu Evu sem getur heldur betur sungið.
„Svo erum við með alþjóðlegt krydd í þessu vegna þess að ástralska leikkonan Virginia Gillard leikur í sýningunni. Hún hefur lengi starfað í London en kynntist Íslendingi og er flutt til Íslands. Í Hafnarfjörðinn og við njótum þess,“ segir Lárus.

