Ritdómur:Níu ný líf í boði – ódýr
Íslensk kona, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti með meiru, Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hefur nú í þriðja sinn á rúmlega tveimur árum skellt nýrri bók á íslenska sjálfshjálparbókamarkaðinn samfara útgáfu sömu bók á dönsku, en þar í landi hefur Þorbjörg starfað um árabil. Fyrsta bókin lofaði í titli tíu ára yngingu á tíu vikum og sýndi höfundinn á nærbrókinni eins og strengdan kött, svo nærskorin var hún af heilbrigðu líferni.
Bækur hennar eru frábærlega hannaðar, notendavænar, prentaðar á fallegan pappír og myndskreyttar af mikilli natni. Þær eru fyrsta flokks framleiðsla af þessari hillu, en sú hilla er tekin að vera nokkuð sveigð af bókmeti víða. Pöpullinn er sökker í velútlítandi lausnir í táradalnum og hvað er þá betra en innbundin aflátsbréf á góðum pappír? Konan sem óð yfir mig í Eymundsson vissi hvað hún vildi, rauk beint á hlaðann og keypti fyrri bækurnar tvær umhugsunarlaust. Vonandi hafa þær komið henni að einhverjum notum, hún var sólgin í lausn á bók.
Lífselexírar hafa lengstaf verið viðfangsefni hrappa: Margt á sjálfshjálparhillunni sveigðu er af því sauðahúsi. Þorbjörg blandar mörgu saman: Uppskriftirnar hjá henni eru forvitnilegar og freistandi, margar með efnum sem verður að sérpanta en sumt má fá hér í verslunum sem sérhæfa sig í heilsuvörum eins og það er kallað. Þetta er dýr matauki og ekki á færri annarra en þeirra sem geta veitt sér slíkan munað. Svo er á hitt að líta að mest af því hráefni sem hún mælir með er ófáanlegt hér nema eftir langa siglingu og er því svo vel rotvarið að skrælið er sindrandi bjart og órotnað í rotþrónni minni eftir veturinn. Við erum allan daginn að innbyrða erfðabreytt matvæli, unnin og meðhöndluð, grænmeti og ávexti, hvað sem okkur líkar. Grunnurinn fyrir heilsuátaki eftir svona uppskriftum er því hæpinn.
Þessi bók Þorbjargar er margt fleira: Í henni má lesa grind að ævisögu, merki eftir bylgju á bylgju ofan af tískusveiflum í þessum efnum má rekja eftir textanum. Og í bland við þetta eru svo krossapróf: Ég tók nokkur og féll í öllum flokkum, reyndist svo fokking ómögulegur að best hefði verið að finna góðan kaðal og styrkan staur. Svo koma þarna inn á milli undarleg fyrirbæri eins og nokkrir kaflar um norrænar rúnir og dularmögn þeirra. Síðasti maður sem ég las um sem tók mikið mark á dulrænu afli þeirra var Himmler heitinn. Hvaðan er þessi rúnafræði sprottin? Ekki er að finna neitt um það í ritaskrá bókarinnar.
En bókin er falleg og vel upp sett, tælir lesanda sinn og hér er að sjálfsögðu fylgt sölumannstrikkinu að hafa falleg andlit í boði eins og í auglýsingunum. Hér eru líka reynslusögur, fólk sem hefur tekið mark á Þorbjörgu og náð tökum á sinni ömurlegu tilveru, nánast risið upp frá dauðum eins og Lasarus forðum. OKKUR ER HÆGT AÐ BJARGA. Það er mórallinn. Nú skal ekki dregin dul á að mennirnir lifa eins og flón. Lífinu má haga á betri veg, kannski þarf öll sefjunarmeðul Þorbjargar til að fólk lifi lífinu lifandi, kannski verður að sýna öllum margsinnis á þrjúhundruð síðum að þeir séu fallnir menn og éti bara óþverra, séu vondir við alla í kringum sig og verstir við sjálfan sig. Þeir sem telja að svo sé gera best að kaupa bækur sem þessa og fylgja erindinu til hlítar. Verði þeim að góðu og gangi þeim vel. Alla vega fjárfesta þeir í fjölbreytilegum og fallegum prentgrip sem fer vel í hendi, lítur vel út á borði og er stæðilegur í hillu. Ég ætla allavega að prufa uppskriftirnar með vel rotvörðu grænmeti og erfðabreyttum ávöxtum í bland við fokdýr efni sem ég veit ekkert hvað geyma. -pbb
**
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Níu leiðir til lífsorku
Salka, 300 síður, 2012.


