Tilfinningar sprengja ramma skáldsögu
Skáldsagan Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2010, var ausin lofi gagnrýnenda og gríðarlega vel tekið af lesendum sem keyptu bókina í bílförmum. Borgarleikhúsið í næstu viku leikrit sem byggir á bókinni og eftirvæntingin er slík að nú þegar er uppselt á 23 sýningar.
Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu og hefur með sér sama einvalalið og setti Fólkið í Kjallaranum á svið með henni. Ólafur Egilsson gerði leikgerðina og í aðalhlutverkunum eru Ilmur Kristjánsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.
„Þetta hefur verið mjög ánægjulegt ferli og hefur tekið á en verið mjög skemmtilegt,“ segir Kristín. „Ólafur Egilsson gerði leikgerðina og hefur unnið lengi í henni og fundið aðferð til þess að segja þessa sögu. Þetta er náttúrlega mjög mikil áskorun að setja þessa sögu á svið,“ segir Krisín og bætir við að á æfingartímabilinu hafi leikhópurinn sameinast um að finna sína aðferð til þess að miðla sögu Bergsveins.
Kristín las bókina þegar hún kom út og segist ekki hafa séð hana fyrir sér á sviði þá. „Ég var nú svolítið efins fyrst þegar ég heyrði um þetta en svo las ég leikgerðina og Óli var bara með ákveðna hugmynd um hvernig hann vildi gera þetta og þá fór ég að sjá þetta betur fyrir mér. Þetta er búið að vera lengi í ferli með leikurunum og Óli breytti leikgerðinni dálítið í ferlinu þannig að þetta er búið að fara í gegnum margar síur.“
Kristín segist reyna að leiða hjá sér þrýstinginn sem felst óhjákvæmilega í að setja jafn vinsæla skáldsögu á svið. „Maður reynir bara að vanda sig og koma þessu eins vel til skila og maður getur og miðla kjarna verksins. Auðvitað hafa allir ólíkar skoðanir á bókinni þannig að við verðum bara að finna okkar leið í gegnum þetta og maður er ekki mikið að leiða hugann að þessari pressu en hún getur líka verið jákvæð.“
Kristín segir að flóknast hafi verið að finna leið til þess að gera hina miklu frásögn bókarinnar að leikhúsi. „Áskorunin var að finna leið til þess að koma frásögninni til skila án þess að þetta yrði bara maður að segja okkur sögu. Við lögðum því mikla áherslu á að stækka allar þessar tilfinningar og kringumstæðum þannig að úr yrði stórt og mikið leikhús. Bergsveinn las leikgerðina og var í góðu samstarfi við Óla á meðan hann skrifaði hana. Hann kom svo inn á æfingu á þriðjudaginn þannig að hann er bara mjög kátur,“ segir Kristín.
.(JavaScript must be enabled to view this email address)


