13.04 2012 | Menning

Úr Undirheimum

Camilla Lackberg. © Thron Ullberg
Camilla Lackberg. © Thron Ullberg

Akranessforlagið Uppheimar skiptir um nafn á þremur nýútkomnum norrænum krimmum – kallar sig Undirheima – svona til gamans. Sögurnar eru Snjókarlinn eftir Jo Nebö, Englasmiðurinn eftir Camillu Läckberg og Aðeins eitt líf eftir Söru Blædel: Norðmaður, Svíi og Dani – öll þrjú metsöluhöfundar í heimalandi sínu, öll þrjú komin vel á veg með að leggja undir sig heiminn í þýðingum, öll þrjú vel þekkt hér á landi af fyrri verkum: Snjókarlinn er fimmta bók Nesbö á íslensku,

Aðeins eitt líf er fjórða bók Söru og Camilla á fyrir átta verk í íslenskri þýðingu. Þau eru semsagt engir byrjendur, kunna öll vel til verka, eru öll að skrifa aftur og aftur um sömu lykilpersónur: Harry Hole, Patrik, Eriku og Önnu, Louise og Camillu. Með sama sviði komast höfundarnir hjá að kynna aðalpersónurnar, treysta á fyrri kynni lesenda af kringumstæðum í lífi þessa rannsóknarfólks, samstarfsmanna, vina og ættingja.

Blædel skrifaði Aðeins eitt líf snemma á ferlinum. Hún vann áfram með frásagnir af grimmd í fjölskyldum innfluttra í Danmörku, Camilla vinnu enn með blöndu af löngu liðnum atburðum að Fjallabaki, ívaf í hennar sögum er stéttskipt samfélag í Svíþjóð, hvernig alþýðufólk verður undir, um leið og hún lýsir aðstæðum hjá millistéttarfólki, félagslegum erfiðleikum í bland við átök í hjónabandi okkar daga.

Nesbö er langflinkastur þessara þriggja höfunda, ekki aðeins að hann sýni mesta hugkvæmni í grunnstefjum fléttunnar, heldur leggur hann enn meiri vinnu en áður í að skapa í plottinu falska botna og taka úr þeim í sögulokum veltu sem skilur lesandann eftir undrandi. Hans hetjur eru, eins og kvennanna tveggja, ekki djúpar persónur – bara hjól í vél til að skapa afþreyingu – en hann er einfaldlega meiri vélvirki í smíði sinni á plotti en stöllur hans tvær.

Í Snjókarlinum dregur hann inn í plottið fátíða sjúkdóma og hvernig þeir erfast. Kann allt að vera uppsuða og bull en í framgangi sögunnar trúir lesandinn hverju orði og gleypir agnið.

Öll þrjú stefna þau svo í sögulokum í mikið crescendo, mikinn spenning, mikil læti, mikið fjör. Þetta hafa þau gert áður og fastir lesendur ætlast enda til þess að fá sinn fiðring við lestur lokakaflanna. Þessar þrjár sögur munu enda skemmta mörgum lesanda fram eftir sumri, inn í eintakið mitt af Snjókarli Nesbö er kominn pöntunarlisti, hinar tvær fara fljótt í lán. Vonandi dugar sala þessara reyfara yfir vor og sumar til að tryggja Uppheimum útgáfu á saðsamari bókmenntum.

*****
Jo Nesbö
Snjókarlinn
Bjarni Gunnarsson þýddi.
Uppheimar, 509 síður, 2012.

***
Camilla Lackberg
Englasmiðurinn
Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
Uppheimar, 472 síður, 2012.

**
Sara Blædel
Aðeins eitt líf
Árni Óskarsson þýddi.
Uppheimar, 350 síður, 2012.





Til baka

ekki rusl