,,Datt þetta í hug við lestur pistils Sigríðar Á Andersen“
,,Fyrir löngu fjallaði ég í fréttaþætti um þekktan ofbeldisbrotamann og rakti hans dómasögu. Nefndi m.a. dóm sem hann hafði fengið fyrir að nauðga konu. Maðurinn var afar ósáttur.
„Mér fannst bara algjör óþarfi að rifja upp að ég hefði lent í nauðgun“, sagði hann.
Datt þetta í hug við lestur pistils Sigríðar Á Andersen, þingmanns og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Hennar viðbrögð við þætti Kveiks á grunni Samherjaskjalana var áhyggjuefni yfir því að Samherjamenn hefðu verið neyddir til að greiða mútur í Namibíu. „Þar var dregin upp dökk mynd af þeim kröfum sem namibískir ráðamenn gera til þeirra sem vilja stunda fiskveiðar við landið, þar á meðal til fyrirtækja í eigu Íslendinga“
Þeir lentu í nauðgun
,,Með þessa siðferðissýn á málið skil ég betur að fyrstu viðbrögð sjávarútvegsráðherra og samflokksmans hennar við Kveiksþættinum, hafi verið að hringja í forstjóra Samherja með áhyggjur af líðan hans.
Þorsteinn Már lenti jú í nauðgun í Namibíu.“
Hefur þú áhuga á að hjálpa Fréttatímanum að vaxa og dafna?
Með því að styrkja Fréttatímann stuðlar þú að frjálsri og óháðri umfjöllun.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/13/rikisstjorninni-ber-ad-senda-namibiumonnum-afsokunarbeidni/?fbclid=IwAR2ojEoqSDvLgw1z43tzfZ1T6tl2fd2H1Hp6VCuUpT0MEjR7sG8W_D7cPX0
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/14/vafningsmalid-orka-energy-landsrettarmalid-panama-skjolin-grai-listinn-og-samherjaskjolin/